Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Engar nýjar kjarabætur fyrir aldraða í fjárlögunum

miðvikudagur, 17. desember 2014

Engar nýjar kjarabætur til handa öldruðum er að finna í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2015.Aðeins er í frumvarpinu eðlileg leiðrétting vegna fjölgunar bótaþega lífeyristrygginga milli ára og vegna hækkunar á frítekjumarki lífeyrissjóðstekna ellilífeyrisþega samkvæmt samkomulagi, sem stjórnvöld gerðu við Landssamtök lífeyrissjóða 2010. Í rauninni hefur ríkisstjórnin ekki látið aldraða fá neinar kjarabætur frá því á sumarþinginu 2013.Það, sem ríkisstjórnin lét af hendi rakna þá, var rýrt í roðinu: Hætt var að láta grunnlífeyri skerðast vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Það gagnaðist þeim betur settu meðal eldri borgara, þ.e. þeim, sem höfðu góðan lífeyrissjóð. Frítekjumarki vegna atvinnutekna aldraðra var breytt þannig að frítekjumarkið var hækkað úr 40 þús.kr.á mánuði í 110 þús.kr. á mánuði. Það kom þeim til góða,sem voru á vinnumarkaðnum. Ekkert fyrir þá verr settu Ríkisstjórnin gerði hins vegar ekkert á sumarþinginu fyrir þá verr settu meðal eldri borgara, þ.e. þá sem höfðu lélegan lífeyrissjóð eða gátu ekki verið á vinnumarkaðnum vegna heilsubrests. Stjórnarflokkarnir gáfu eldri borgurum og öryrkjum stór kosningaloforð fyrir þingkosningarnar 2013.Því var lofað, að kjaragliðnun frá krepputímanum yrði leiðrétt, það er lífeyrir aldraða og öryrkja hækkaður til að vega upp gliðnunina sl. 5 ár en á því tímabili hækkuðu lágmarkslaun miklu meira en lífeyrir.Til þess að jafna metin þarf að hækka lífeyri um a.m.k. 20%. Ríkisstjórnin hefur ekkert gert í því að efna þetta loforð. Auk þess lofuðu stjórnarflokkarnir að afturkalla alla kjaraskerðinguna frá 1.júlí 2009.Þar var um 6 atriði að ræða.Tvö þeirra, sem ég gat um hér að framan, hafa verið afturkölluð.Eitt rann út af sjálfu sér, þar eð lögin voru tímabundin.En 3 atriði hafa ekki verið afturkölluð. Á flokksþingi Framsóknarflokksins 2013 var eftirfarandi samþykkt:"Kjaraskerðing aldraðra og öryrkja, sem tók gildi 1.júlí 2009, verði afturkölluð.Lífeyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður vegna kjaraskerðingar þeirra (og kjaragliðnunar) á krepputímanum.” Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti að afturkalla ætti kjaraskerðinguna frá 2009 tafarlaust.Miðað við þessar ákveðnu samþykktir komast flokkarnir ekki hjá því að efna þessi kosningaloforð. Það verður að efna þau strax. Dregið úr hækkun til lífeyrisþega Þrátt fyrir að aðeins lítill hluti kosningaloforða við aldraða hafi verið efndur lét ríkisstjórnin sér sæma að minnka hækkun á lífeyri,sem aldraðir og öryrkjar áttu að fá samkvæmt fjárlagafrumvarpinu um áramót.Lífeyrir átti að hækka um 3,5%. En nú hefur verið ákveðið að að hækkunin verði aðeins 3%. Þetta gerist þó lífeyrir hafi um tíma verið frystur í kreppunni. þegar laun voru að hækka. Ég skora á ríkisstjórnina að leiðrétta þetta aftur. Björgvin Guðmundsson formaður kjaranefndar Félags eldri borgara Birt í Fréttablaðinu 17.des.2014


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn