Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ríkisstjórnin hefur haft 40 milljarða af öldruðum sl.11 ár

laugardagur, 11. febrúar 2006

 

 

Árið 1995 voru rofin sjálfvirk tengsl milli lífeyris aldraðra frá Tryggingastofnun og lágmarkslauna verkafólks.Fram að þeim tíma hækkaði lífeyrir aldraðra sjálfvirkt þegar laun verkafólks hækkuðu.Þegar hin sjálfvirku tengsl voru rofin sagði þáverandi forsætisráðherra,að kjör aldraðra yrðu ekki skert við þessa breytingu.En það  fór á annan veg. Lífeyrir aldraðra hefur  stöðugt rýrnað í samanburði við  lágmarkslaun verkafólks.Lífeyrir aldraðra hefur dregist aftur úr í launaþróuninni.

  Hvað hefur mikið verið haft af öldruðum sl. 11 ár vegna þess,að  sjálfvirku tengslin milli lífeyris og launa voru rofin?Hvað hefðu aldraðir átt að fá mikið meira í sinn hlut á þessu tímabili, ef lífeyrir þeirra hefði alltaf hækkað í samræmi við lágmarkslaun? Það er engin smáupphæð. Aldraðir hefðu átt að fá 40 milljörðum króna meira í sinn hlut, ef tengslin hefðu ekki verið rofin. Það eru miklir peningar. Þetta er sú upphæð,sem ríkisstjórnin hefur haft af öldruðum. Það verður að gera þá kröfu,að ríkisstjórnin skili öldruðum þessari fjárhæð. Ríkisstjórnin verður að skila öldruðum 40 milljörðum króna.Þetta er meirihluti Símapeninganna. Aldraðir áttu sem sagt að fá meirihlutann af Símapeningunum.

 Krafan í dag er þessi: Lífeyrir aldraðra verði strax hækkaður um 17000 krónur á mánuði. Síðan verði  “gamla skuldin” greidd smátt og smátt. Ef til vill væri skynsamlegt að  byggja hjúkrunarheimili fyrir aldraða fyrir gömlu skuldina.Aðalatriðið er að ríkið geri upp við aldraða.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn