Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Það á að kjósa til alþingis í vor

þriðjudagur, 6. janúar 2009

 
Það er þung undiralda  í þjóðfélaginu.Almenningur er óánægður,margir eru reiðir.Menn hafa tapað miklu í bönkunum við fall þeirra og lífskjörin  versna dag frá degi. Kaupmáttur hefur minnkað um rúm 6% og heldur áfram að minnka.Verðlag í verslunum hefur stórhækkað og vextir og afborganir af lánum hafa skrúfast upp,bæði á verðtryggðum lánum og mynkörfulánum.Það er í þessu andrúmslofti,sem almenningur kemur saman  á Austurvelli á hverjum laugardegi og mótmælir.Almenningur mótmælir falli bankanna og  fjármálakreppunni. Almenningur krefst þess,að þeir,sem bera ábyrgðina, axli ábyrgð,stjórnmálamenn  og þær eftirlirsstofanir,sem áttu að fylgjast með bönkunum.Mótmælafundirnir á Austurvelli hafa krafist afsagnar yfirstjórnar Seðlabanka og Fjármálaeftirlits og krafist hefur verið kosninga.
 
Stjórnarsáttmálinn er úreltur
 
Áður en Sjálfstæðisflokkurinn ákvað að flýta landsfundi sínum og halda hann ´
i lok janúar setti Samfylkingin fram þær óskir, að stjórnarsáttmálinn yrði endurskoðaður.Bæði formaður flokksins og Jóhanna Sigurðardóttir lýstu því yfir opinberlega að endurskoða þyrfti stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, þar eð hann væri orðinn úreltur. Svo mikið hefði breyst vegna bankahrunsins og fjármálakreppunnar. Samfylkingin hefur  hert baráttu sína fyrir aðild að Evrópusambandinu og telur,að bankahrunið hafi sýnt okkur, að krónan dugar ekki lengur.Samfylkingin vill  sækja um aðild að ESB og taka upp evru.Enda þótt menn geri sér ljóst,að umsókn um ESB nú leysir ekki aðsteðjandi efnahagsvanda  þá telja menn ei að síður að slíkt skref mundi hafa jákvæð áhrif og  auka tiltrú erlendra aðila á Íslandi.Finnar hafa nýlega sagt, að Ísland gæti fengið aðild að ESB á 1/2- 1 1/2 ári .Það er mikið skemmrri tími en áður hefur verið rætt um. Í nýjum stjórnarsáttmála yrði sjálfsagt fjallað með öðrum hætti en áður um Ísland og ESB en auk þess þyrfti að breyta öðrum ákvæðum sáttmálans vegna breyttra aðstæðna.Nauðsynlegt er að skýrt komi fram í nýjum stjórnarsáttmála  að ríkisstjórnin vilji standa vörð um lífskjör láglaunafólks,aldraðra og öryrkja. Það þarf að bæta kjör aldraðra og öryrkja þrátt fyrir eriftt ástand og taka það skýrar fram en í núverandi stjórnarsáttmála.
 
Samþykkir Sjálfstæðisflokkurinn aðild að ESB?
 
Menn bíða spenntir eftir landsfundi Sjálfstæðisflokksins og sérstaklega eftir því hvað fundurinn ákveður um ESB.Mun Sjálfstæðisflokkurinn samþykkja að sækja um aðild  að sambandinu eða ekki. Ummæli Geirs formanns og Þorgerðar Katrínar,varaformanns, í þætti RUV  Í vikulokin, benda til þess að þau muni mæla með því  að sótt verði um aðild að ESB. Það yrðu  stórtíðindi. Líklegt er,að það mundii styrkja stjórnarsamstarfið, ef Sjállstæðisflokkurinn samþykkti að sækja um aðild að ESB. En ekki er það öruggt. Það verður einnig að  tryggja  að stjórnin  gæti hagsmuna láglaunafólks og aldraðra og persónulega tel ég að taka verði  einnig upp kvótamálið. Það er ekki unnt að íta því á undan sér lengur. 
Spurningin um kosningar   eða ekki kosningar getur einnig haft úrslitaáhrif.Krafa almennings er: Kosningar. Menn vilja kjósa til þess að ríkisstjórn og alþingismenn axli ábyrgð af bankahruninu og kreppunni.Það er ekki nóg, að stjórn Seðlabanka og FME víki. Stjónmálamenn verða einnig að axla ábyrgð.Forseti ASÍ hefur sett fram þá kröfu,að viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra víki úr stjórninni vegna hruns bankanna.Sjálfsagt setur hann fram .þessa kröfu vegna þess, að hann vill síður að stjórnin í heild víki.Þess vegna vill hann,að þeir ráðherrar,sem haft hafa með bankamál og fjármál að gera axli ábyrgð. Ég  hallast fremur að kosningum, þar eð þá má segja,að stjórnin í heild axli ábyrgð og leggi mál sín í dóm þjóðarinnar.Á því er nauðsyn.
 
 
Björgvin Guðmundsson
 
Birt í Mbl. í desember 2008
 
 


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn