Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Harkaleg árás á kjör og stöðu öryrkja

fimmtudagur, 26. maí 2005

 

Heilbrigðis-og tryggingaráðuneytið fékk Hagfræðistofnun Háskóla Íslands til þess að reikna út hvað öryrkjum hefði fjölgað mikið á tilteknu árabili og hvað heildarupphæð örorkulífeyris hefði hækkað mikið á því tímabili.Síðan er haldinn blaðamannafundur og tilkynnt að öryrkjum hafi fjölgað mjög mikið! Maður hefði nú haldið að starfsmenn heilbrigðis-og tryggingaráðuneytsins hefðu getað lagt saman fjölgun öryrkja á umræddu tímabili. Varla hefur þurf að fá aðstoð Háskólans í því efni.Auk þess liggur þetta allt fyrir í ársskýrslum Tryggingastofnunar ríkisins. Þetta er ekkert annað en sjónarspil. Ráðamönnum er mikið í mun að draga fram aukin útgjöld ríkisins  vegna fjölgunar öryrkja. Og í þeirri áróðursherferð þykir vænlegt að beita Hagfræðistofnun Háskólans. Tölur um fjölgun öryrkja eiga að vigta eitthvað meira, ef sú stofnun birtir þær  en ef Tryggingastofun eða  heilbrigðisráðuneyti birtir þær. Síðan rekur Hagfræðistofnun upp mikið óp og segir,að örorkubætur séu mjög háar og hvetji menn til þess að vera frekar á örorkubótum en atvinnuleysisbótum! Fróðlegt væri að bera saman laun forstöðumanns Hagfræðistofnunar og dæmigerðs öryrkja.Ég reikna ekki með aðforstöðumaðurinn  mundi vilja skipta og reyna að lifa af launum öryrkjans.

 

Orsökin:Atvinnuleysi-harka atvinnulífsins

 

  Það komu engin ný sannindi fram í skýrslu Hagfræðistofnunar um fjölgun öryrkja. Garðar Sverrisson,fyrrverandi formaður Öryrkjabandalagsins,hefur margoft rætt þessa fjölgun og skýrt orsakir hennar.Hann hefur bent á,að atvinnuleysið  og aukin harka atvinnulífsins gegn launafólki  sé aðalorsök fjölgunar öryrkja.Atvinnurekendur vilja ekki lengur vinnukraft,sem ekki stendur sig 100%.Þeir launþegar,sem  eru fyrir neðan meðallag til vinnu, eru miskunnarlaust reknir.Þeir lenda á atvinnuleysisskrá og brotna niður,þar eð þeir fá ekki vinnu á ný.Það er búið að skapa hér  peningagræðgisþjóðfélag,sem ýtir öllum til hliðar,sem ekki standa sig 100%.Áður höfðu atvinnurekendur manneskjuleg sjónarmið við mannaráðningar og mat á starfsfólki.Það er liðin tíð. Þess vegna verða nú margir að öryrkjum,sem áður gátu verið á vinnumarkaðnum. Stjórnvöld hafa skapað þetta ástand. Þau eiga við sig sjálf að sakast í því efni.

 

Lífeyrir 90 þús kr. á mánuði eftir skatta!

 

  Lífeyrir einhleypra öryrkja er aðeins um 90 þús. kr. á mánuði eftir skatta og rúmlega það hjá þeim sem urðu ungir örykjar.. Það lifir enginn mannsæmandi lífi af því  eins og húsnæðiskostnaður er hér nú. Það er út í hött fyrir Hagfræðistofnun Háskólans að kalla þetta háar örorkubætur. Þetta  eru smánarlega lágar bætur.Það réttlætir ekki þessar lágu bætur, að atvinnuleysisbætur skuli vera enn lægri.Það þarf að leiðrétta verulega atvinnuleysisbætur.Þær eru til skammar. Það er einnig ósmekklegt að halda því fram,að öryrkjar svindli á kerfinu og fái hærri bætur en þeir eigi rétt á eða fái bætur á röngum forsendum.Það fær enginn örorkulífeyri nema hann fari í læknisskoðun og fái örorkumat hjá  tryggingaryfirlækni.Ef menn eru óánægðir með það hvað margir fá  örorkulífeyri og telja þá of marga er við tryggingayfirlækni og lækna að sakast en ekki við öryrkja.Einnig geta menn verið óánægðir með reglurnar.Þær eru ekki settar af öryrkjum.Því hefur lengi verið haldið fram,að sumir misnoti tryggingakerfið. Í því sambandi hefur mikið verið rætt um einstæðar mæður,sem sagt er,að haldi bótum sem slíkar eftir að þær eru komnar í sambúð o.s.frv.Það hefur oft verið ráðist á einstæðar mæður á þessum forsendum.Nú er ráðist harkalega á öryrkja með aðstoð Hagfræðistofnunar Háskólans.Það er verið að draga athyglina frá hinni raunverulegu orsök vandans,sem er atvinnuleysið og miskunnarlaus hörkustefna atvinnurekenda  gagnvart launþegum.

 

Vandinn liggur annars staðar

 

 Stjórnvöldum væri nær að afnema sérréttindi  ráðherra og æðstu embættismanna,sem eru á margföldum eftirlaunum og geta jafnvel tekið há eftirlaun þó þeir séu á fullum launum í nýjum, störfum.Það er hróplegt ranglæti sem leiðir í ljós stórfellt misrétti. Það eiga að gilda sömu reglur um eftirlaun fyrir alla þegna þjóðfélagsins.

Stjórnarskráin kveður á um jafnrétti. Forsætisráðherra þóttist ætla að leiðrétta efirlaunamálin en fyrrverandi forsætisráðherra stoppaði hann af.Það gleymdist að fá leyfi  hjá Davíð!

 Í stað þess að ráðast á öryrkja  eins og gert er með skýrslu Hagfræðistofnunar ættu stjórnvöld að sjá sóma sinn í því að leiðrétta kjör öryrkja,hækka örorkulífeyri þannig,að öryrkjar gætu lifað sómasamlegu lífi af honum.

 

Hoggið í sama knérunn og áður

 

   Það er hoggið í sama knérunn og áður. Hæstiréttur hefur tvívegis dæmt,að ríkisstjórnin hafi brotið stjórnarskrána með því að skerða kjör öryrkja.Nú vofir þriðja málið gegn ríkisstjórninni yfir,þar eð ríkisstjórnin sveik samkomulag,sem hún gerði við öryrkja fyrir síðustu þingkosningar um að bæta kjör ungra öryrkja um ákveðna  fjárhæð. Eftir það,sem á undan er gengið, hefði mátt búast við,að ríkisstjórnin tæki upp jákvæðari afstöðu til öryrkja.En svo virðist ekki vera.Skýrsla heilbrigðisráðuneytisins um málefni öryrkja leiðir í ljós,að ríkisstjórnin er við sama heygarðhornið og áður í málefnum öryrkja.

 

Björgvin Guðmundsson 

 

Birt í Fréttablaðinu  26.mai 2005

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn