Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!

fimmtudagur, 1. desember 2016

Þegar ríkisstjórn Alþýðuflokksins,Sjálfstæðisflokksins og Sósialistaflokksins setti lög um almannatryggingar 1946,var Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra.Hann lýsti því þá yfir, að almannatryggingar á Íslandi ættu að vera í fremstu röð slíkra trygginga í Evrópu og allir á Íslandi ættu að njóta þeirra án tillits til stéttar eða efnahags.Fyrst eftir lagasetninguna voru almannatryggingar á Íslandi í fremstu röð en síðan drógust þær aftur úr og í dag standa almannatryggingar á Íslandi langt að baki slíkum tryggingum á Norðuröndum og í Bretlandi.Grunnlífeyrir á Ísland er aðeins þriðjungur slíks lífeyris í grannlöndum okkar. Ólafur Thors vildi efla almannatryggingar hér. Bjarni Benediktsson vill halda þeim niðri.Það eru alger öfugmæli, þegar Bjarni Benediktssn segir, að núverandi ríkisstjórn sé að auka lífeyri aldraðra og öryrkja meira en nokkru sinni áður á lýðveldistímanum.Ríkisstjórnin er ekki að efla almannatryggingar hér neitt.Hún heldur ekki einu sinni í horfinu. Laun hækkuðu hér um 14-20% á árinu 2015.Launin hækkuðu frá 1.mai 2015. Lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkar ekkert í 8 mánuði og aðeins um 9,7% frá l.janúar 2016.Lífeyrir hækkar miklu minna en laun og 8 mánuðum seinna en laun. Það er því verið að brjóta lagaákvæði um að lífeyrir eigi að hækka í samræmi við launaþróun og það er verið að hlunnfara lífeyrisþega með því að draga þá á hækkun í 8 mánuði. Almannnatryggingar voru efldar meira 1946 en nú.Og lífeyrir hækkaði um tæp 20% í ráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur um áramótin 2008/2009.Viðreisnarstjórnin stórefldi einnig almannatryggingar.Það stenst því engan vegin, að ríkisstjórnin sé nú að gera betur en áður. Það er þveröfugt. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurardóttur stóð sig einnig betur á krepputímanum gagnvart lífeyrisþegum, þar eða lífeyrir þeirra,sem voru á strípuðum bótum, var þá ekkert skertur. Hann hélst óbreyttur þó aðrar bætur lækkuðu.Þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben. eru ekki að bæta kjör lífeyrisþega Þeir eru að níðast á þeim. Björgvin Guðmundsson Birt í Fréttablaðinu 12.jan. 2016


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn