Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Gerræðisleg vinnubrögð í Framsókn

þriðjudagur, 13. júní 2006

 

 

Atburðirnir í Framsóknarflokknum  að undanförnu hafa opinberað  hvernig  síðustu stjórnmálaleiðtogar gamla tímans fara með vald sitt.Breytingar á ráðherraskipan Framsóknar og undirbúningur að leiðtogaskiptum í Framsókn hafa  opinberað gerræði og  valdsýki leiðtoga gamla tímans.Þessi vinnubrögð eiga ekkert skylt við lýðræði.

 

Guðni átti að taka við

 

 Rétt er að hafa í huga, að samkvæmt lögum Framsóknarflokksins á  varaformaður að taka við formennsku í flokknum, ef formaður  segir af sér. Það vill segja, að ef formaður flokksins segir af sér á Guðni Ágústsson varaformaður flokksins að taka við formennsku.Leiðtogaskipti hefðu því ekki átt að vera flókin og ekki þurft að valda neinu klúðri eða skapa nein vandamál. En þegar formaður Framsóknar tilkynnti, að  hann hefði ákveðið að segja af sér formennsku  var jafnframt ákveðið að reyna að fá varaformanninn til þess að segja af sér um leið og tryggja kosningu Finns Ingólfsssonar sem  nýs leiðtoga,formanns,Framsóknarflokksins. Um þessi gerræðislegu vinnubrögð varð ekki  sátt í Framsókn. Þá er næst reynt að fá annan framsóknarmann utan þingflokksins til þess að  taka við formennsku. Allt miðast þetta við það, að fráfarandi formaður geti ráðið eftirmanni sínum,handvalið hann utan þings svo ekki komi til þess að nýr formaður sé valinn með lýðræðislegri kosningu. Þessi vinnubrögð opinbera það,að engum úr þingflokki Framsóknar er treyst til þess að taka við formennsku í flokknum. Þessi vinnubrögð eru niðurlægjandi fyrir þingmenn Framsóknarflokksins en þó einkum fyrir núverandi varaformann.

 

Ráðherrasætum úthlutað til þeirra útvöldu

 

 Breytingar á ráðherraliði Framsóknar eru  í sama anda og framangreint.Auk  “formannskandidats” sem valinn er utan frá eru valdir nýir ráðherrar, sem hafa verið hæfilega þægir flokksformanni.Gengið er framhjá Kristni Gunnarssyni, þar eð hann hefur sagt meiningu sína við flokksforustuna, þar á meðal um Íraksstríðið en hann hefur gagnrýnt harðlega, að Framsókn skyldi styðja innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak. Reynt er að losa sem flest ráðherrasæti til þess að  unnt sé að úthluta sætum til þeirra sem hafa verið þægir og/eða þarf að hafa góða. Jón Kristjánsson,sem alltaf hefur verið mjög flokkshollur og handgenginn formanni  ákvað að rýma sitt ráðherrasæti  af flokkshollustu eins og hann sagði sjálfur en ekki vegna þess að hann væri uppgefinn enda nýkominn í embættið.Hann vissi hvað klukkan sló. Góðu strákarnir þurftu að fá ráðherraembætti,Magnús og Jón.Og ekki var lengur unnt að ganga fram hjá Jónínu.Það var gert eftir þingkosningarnar. Sennilega hefur Hjálmar talað eitthvað  óvarlega í látunum undanfarið, þar eð hann fékk ekki ráðherrasæti.Af einhverjum ástæðum var hann ekkert látinn fylgjast með  því ráðabruggi,sem  var í gangi í Framsókn. Hann virtist algerlega vera  utan garðs  og vissi ekkert hvað var að gerast enda þótt hann væri formaður þingflokksins. Að vísu vissu fáir aðrir en flokksformaður hvað var í bígerð  enda ekki tíðkast að ráðgast við marga.Einræði hefur ríkt í flokknum.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn