Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Nógir peningar til í því skyni að hækka lífeyri aldraðra

fimmtudagur, 13. desember 2007

Frumvarp til fjárlaga var tekið til 3.umræðu á alþingi í gær. Fram kom,að afgangur á fjárlögum ársins 2008 yrði  39,2 milljarðar og hafði afgangur aukist milli umræðna þrátt fyrir  barlóm ráðherra um peningaleysi og hvað  aðgerðir fyrir aldraða mundu kosta mikið.Afgangur fjárlaga fyrir árið 2007 var áætlaður 9 milljarðar. Afkoman hefur því batnað mikið milli ára og greinilega nógir peningar til.Aðgerðir fyrir aldraða og öryrkja kosta 2,6 milljarða á næsta ári, samkvæmt ætlun.  Minni skerðing á tryggingabótum þeirra  sem eru á aldrinum 67-70 ára,  og eru á vinnumarkaði, kostar 0,6 millarða  næsta ár.( Frítekjumark 100 þúsund á mánuði) Afnám skerðingar vegna tekna maka kostar 1,3 milljarða.  2008.  Ekki eru þetta það háar upphæðir að ráðherrar þurfi að stynja eins og þeir gerðu þegar þeir tilkynntu ráðstafanirnar.

Skattttekjur ríkisins aukast um 4 milljarða á ári

Það er svo önnur saga,að þegar upp er staðið kosta ráðstafanir  í þágu aldraðra ríkið ekki neitt ,þar eð skatttekjur þess   munu aukast  mjög mikið eða um  4 milljarða á ári að því er Rannsóknarsetur verslunarinar hefur kannaðog reiknað út.Miðað við góða afkomu  ríkissjóðs og auknar skatttekjur ríkisins af atvinnutekjum eldri borgara  væri unnt að hækka lífeyri eldri borgara strax eins og mikil þörf er á.

Björgvin Guðmundsson




N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn