Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Einkavæðing bankanna hefur mistekist

mánudagur, 29. janúar 2007

 

Góður mælikvarði á hagkvæmni í bankarekstri er vaxtamunur, munur á útlánsvöxtum og innlánsvöxtum.Þegar bankarnir voru  einkavæddir var reiknað með því að vaxtamunurinn mundi minnka. En nú er komið í ljós, að vaxtamunurinn hefur aukist og á sama tíma hafa þjónustugjöld einnig  aukist.Viðskiptavinir bankanna hér innan lands hafa ekki notið betri afkomu bankanna í lægri vöxtum eða lægri  þjónustugjöldum. Aukinn gróði bankanna hefur allur runnið í vasa eigendanna.

Verra en þegar bankarnir voru ríkisreknir

Á viðreisnarárunum,1960-1971, var vaxtamunur bankanna 2,5% á ári til jafnaðar.Á þeim tíma voru bankarnir allir ríkisreknir og margir töldu, að rekstur bankanna væri ekki nægilega hagkvæmur í höndum ríkisins. Lítill vaxtamunur á þessum tíma bendir hins vegar til þess,að rekstur bankanna hafi verið hagkvæmur.Á verðbólguárunum  1972-1990  jókst vaxtamunur mjög og var 9% til jafnaðar á ári..Ein helsta röksemdin fyrir einkavæðingu bankanna var sú,að  vaxtamunur þeirra væri allt of  mikill og að hann mundi minnka við einkavæðingu. En svo hefur ekki orðið.Vaxtamunurinn hefur aukist eða í 13,4% 2005.Að þessu leyti til hefur einkavæðing bankanna því mistekist. Vaxtamunur bankanna var til jafnaðar 13% á ári á tímabilinu  1991-2006.Hvers vegna hefur vaxtamunur bankanna aukist við  einkavæðinguna í stað þess að minnka? Ef til vill er ástæðan sú, að bankarnir voru seldir á undirverði vinum og vandamönnum stjórnarflokkanna og ekki hirt um að selja bankana  hæsta verði mönnum,sem kunnu til bankareksturs.Hinir nýju eigendur bankanna eru haldnir taumlausri  græðgishyggju  fyrir hönd hluthafanna en hugsa ekkert um hag íslenskra viðskiptavina bankanna.

Á að koma bönkunum í hendur ríkisins á ný?

Mál þetta var rætt í Silfri Egils sunnudaginn 28.janúar 2007. Þar var Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, gestur Egils Helgasonar. Jón sagði, að miðað við það hvernig eigendur bankanna hefðu haldið á málum og miðað við að vaxtamunur bankanna hefðu aukist við einkavæðinguna væri ef til vill réttast að þjóðnýta bankana á ný.

Neytendasatökin hafa oft gagnrýnt bankana harðlega fyrir mikinn vaxtamun og há þjónustugjöld. Ekki hefur verið gert mikið með þessa gagnrýni samtakanna. Krafan er sú, að athugað verði hvort bankanrnir hafi misfarið með viðskiptafrelsið.Samkeppniseftirlitið  hefur bent á, að vaxtamunur bankanna sé meiri hér en á hinum Norðurlöndunum.Auk þess hefur eftitlitið vakið athygli á því, að mikil samþjöppun er hér í bankarekstrinum. Samkeppni er í lágmarki..  Vextir bankanna eru furðulíkir,  svo og þjónustugjöldin. Ekki er vitað hvort um eitthvert samráð er að ræða milli bankanna við verðlagningu þjónustu og ákvörðun vaxta.En framkoma bankanna gagnvart viðskiptavinum er furðulega lík framkomu olíufélaganna við sína viðskiptavini en þau reyndust sem kunnugt er sek um ólöglegt verðsamráð.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn