Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ríkisstjórnin hefur rangt við

laugardagur, 17. júlí 2004

 

 

Þegar á reyndi þorði ríkisstjórnin ekki að láta þjóðaratkvæðagreiðsluna um fjölmiðlafrumvarpið fara fram. Hún óttaðist að bíða ósigur í þeirri atkvæðagreiðslu.Hún tók því þann kost að draga fjölmiðlalögin til baka og leggja fram nýtt frumvarp um sama efni með örlitlum breytingum!

 

Stenst þetta stjórnarskrána?

 

Menn eru ekki á eitt sáttir um það hvort þessi ráðstöfun ríkisstjórnarinnar standist stjórnarskrána. Að sjálfsögðu getur ríkisstjórnin eða alþingi fellt úr gildi lög,sem samþykkt hafa verið. En hvort það stenst,að afturkalla lög eða frumvarp sem er til meðferðar hjá þjóðinni og leggja um leið fram annað frumvarp örlítið breytt er annð mál.Með þessari aðferð er ríkisstjórnin að hafa rangt við. Hún er að komast hjá þjóðaratkvæðagreiðslunni með klækjum. Breytingarnar á fjölmiðlafrumvarpinu eru aðeins til málamynda: Í stað þess að markaðsráðandi fyrirtæki megi eiga 5% í ljósvakafyrirtæki segir nú,að þau megi eiga 10%. Og í stað þess að lögin taki gildi 2006 eiga þau nú að taka gildi 2007. Þetta eru sáralitlar breytingar og mikil spurning hvort þær réttlæti það,að hætta við þjóðaratkvæðagreiðslu. Fyrstu viðbrögð almennings við þessari  ráðstöfun ríkisstjórnarinnar eru neikvæð. Almenningur virðist sjá í gegnum bellibrögð ríkisstjórnarinnar og það virðist jafnmikil andstaða gegn þessu nýja lagafrumvarpi um fjölmiðla eins og því gamla.Ef svo er þá er jafnmikil gjá milli þings og þjóðar í málinu eins og  áður. En það var aðalástæðan fyrir synjun forseta Íslands á staðfestingu fyrra fjölmiðlafrumvarpsins.

 

Allt gert til þess að bjarga stólunum

 

Þessi síðasta ráðstöfun ríkisstjórnarinnar er örvæntingartilraun til þess að bjarga ríkisstjórninni frá falli.Ágreiningur var orðinn mikill milli stjórnarflokkanna um hvernig haga ætti þjóðaratkvæðagreiðslunni. Ljóst var að þingmenn Framsóknar vildu ekki setja eins miklar skorður við atkvæðisrétti  kjósenda eins og Sjálfstæðisflokkurinn vildi. Það var farið að hrikta í stjórnarsamstarfinu. Þá datt forsætisráðherra í hug að best væri að draga fjölmiðlafrumvarpið til baka og gera á því málamyndabreytingar.Allt skal gert til þess að stjórnin geti hangið við völd og formaður Framsóknar fengið að sitja um sinn við borðsendann á ríkisstjórnarfundum.

 

Engin sátt um málið

 

Ríkisstjórnin lætur sem þetta nýjasta útspil hennar sé gert til sátta. En það er blekking.Ef raunverulegur vilji hefði verið til sátta hefðu fjölmiðlalögin verið dregin til baka án skilyrða. Síðan hefði ríkisstjórnin boðið stjórnarandstöðunni til samstarfs um að semja nýtt fjölmiðlafrumvarp og tekið góðan tíma í það verk,a.m.k. til haust. En ríkisstjórnin sýnir þá ósvífni að leggja fram nýtt frumvarp um leið og það gamla er afturkallað.Með því sýnir hún,að enginn raunverulegur áhugi er á sáttum.

 Búast má því við að sami ófriður verði um nýja frumvarpið eins og það gamla.Þjóðin mun hafna nýja frumvarpinu.

 

Björgvin Guðmundsson

Birt í Fréttablaðinu 17.júlí 2004



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn