Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Órólega deildin í VG stefnir ríkisstjórninni í hættu

laugardagur, 28. ágúst 2010

Órói hefur aukist innan Vinstri grænna vegna stjórnarsamvinnunnar við Samfylkinguna.Síðasta upphlaup VG vegna Magma málsins var stórt og ekki enn séð fyrir endann á því.Stuttu áður var upphlaup hjá VG vegna umsóknarinnar um aðild að ESB en því máli var frestað til hausts.Það var þó í stjórnarsáttmálanum að sækja ætti um aðild að ESB þannig ,að ekki var ástæða til þess að efna til upphlaups út af því máli. Stærsta upphlaupið var þó vegna Icesave málsins en þar var ágreiningur svo mikill,að Ögmundur Jónasson þá heilbrigðisráðherra,sagði af sér ráðherraembætti í mótmælaskyni við stefnu ríkisstjórnarinnar í málinu. Stöðug upphlaup órólegu deildarinnar í VG veikja að sjálfsögðu ríkisstjórnina.Eðlilegra væri að að leysa ágreiningsmál stjórnarflokkannan innan stjórnarflokkanna í stað þess að bera þau alltaf á torg.En engu er líkara en VG kunni ekki að vera í ríkisstjórn. VG virðist halda,að flokkurinn geti bæði verið með og móti ríkisstjórninni. Það gengur ekki til lengdar. Órólega deildin í VG hefur lagt mikla áherslu á að rifta samningnum við Magma um kaup á meirihluta í HS Orku.Sagt er,að samningurinn sé ógildur, þar eð um "skúffufyrirtæki" hafi verið að ræða í Svíþjóð,sem keypt hafi hlutinn í HS Orku. Ég tel að vísu að fyrirtækið í Svíþjóð sé löglegur lögaðili og að ekkert sé í lögum sem skyldi félagið í Svíþjóð til þess að hafa aðra starfsemi með höndum en eignarhald.En ef rannsókn ríkisstjórnarinnar leiðir í ljós,að samningurinn við sænska félagið sé ólöglegt þá telst samningurinn ógildur og verður felldur úr gildi.En fari svo tekur Glitnir eða kröfuhafar félagsins við HS Orku á ný en þar er einnig um útlendinga að ræða. Það verður því farið úr öskunni í eldinn.Órólega deildin í VG gerði litlar athugasemdir þegar samningur Magma var gerður við HS Orku í sumar.Upphlaupið hófst ekki fyrr en að samningsgerð lokinni. Upphlaup órólegu deildar VG á flokksráðsfundi vegna ESB umsóknar er enn undarlegra.Steingrímur J.Sigfússon,formaður VG,tók það skýrt fram þegar ríkisstjórnin var mynduð,að það væri gott að fá að vita hvað í boði væri hjá ESB og þess vegna hefði VG fallist á,að sótt yrði um aðild að sambandinu.Síðan yrði málið lagt undir þjóðaratkvæðagreiðslu og þjóðin látin skera úr um það hvort Ísland ætti að ganga í ESB.En hvers vegnaa er órólega deildin í VG þá að efna til upphlaups um þetta mál,sem flokkurinn var búinn að semja við Samfylkinguna um. Málið er alveg skýrt í stjórnarsáttmálanum.Það er brot á stjórnarsáttmálanum,ef einstakir þingmenn VG samþykkja að draga eigi umsókn um aðild að ESB til baka.Icesave málið er eitt málið,sem mikill ágreiningur er um innan VG.Ögmundur Jónasson hefur verið fremstur í flokki andstæðinga stefnu stjóórnarinnar í málinu.Margir telja nauðsynlegt að veita honum sæti í ríkisstjórninni á ný og að þá sé líklegra að unnt verði að leysa ágreining um Icesave innan ríkisstjórnarinnar.Ef til vill er það rétt. Raunar tel ég,að Ögmundur hefði aldrei átt að segja sig úr stjórninni.Það voru mstök,að hann skyldi fara úr stjórninni. Órólega deildin í VG verður að gera upp við sig hvort hún ætlar að styðja stjórnina eða ekki.Samfylkingin getur misst þolinmæðina, ef þessi stöðugu upphlaup halda áfram.Ríkisstjórnin verður ekki starfhæf,ef einhverjir þingmenn VG eru stöðugt að l´æysa því yfir,að þeir hætti að styðja stjórnina ef þeir fái ekki þessu og þessu framgengt.Slík vinnubrögð ganga ekki áfram. Björgvin Guðmundsson Birt í Fréttablaðinu 26.ágúst 2010


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn