Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Hver á stærsta þáttinn í viðskiptafrelsinu?Svar: Alþýðuflokkurinn

mánudagur, 24. nóvember 2003

 

 

Af og til eru  vissir talsmenn Sjálfstæðisflokksins að  þakka Sjálfstæðisflokknum viðskiptafrelsið,sem hér ríkir nú. Það er því ekki úr vegi að rifja upp hvaða flokkar  og hvaða stjórnmálamenn stóðu einkum að því að innleiða frjálsræði á sviði viðskipta og fjármagnsflutninga.

 

Gylfi Þ.Gíslason hóf starfið

 

 Í tíð viðreisnarstjórnar Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins beitti Gylfi Þ.Gíslason, viðskiptaráðherra  Alþýðuflokksins,sér fyrir afnámi  innflutningshafta.Samkvæmt tillögum Gylfa voru nær allar vörur settar á frílista og innflutningur þeirra varð frjáls.Í beinu framhaldi af  þessu barðist Gylfi fyrir inngöngu Íslands í EFTA,Fríverslunarsamtök Evrópu. Voru mjög margir á Alþingi andvígir inngöngu Íslands í EFTA,einkum þingmenn Alþýðubandalagsins og margir  úr Framsókn.En tillögur Gylfa um aðild að EFTA voru samþykktar á alþingi. Það skref ruddi brautina  fyrir aðild Íslands að EES,Evrópska efnahagssvæðinu.Án aðildar að EFTA hefði ekkert orðið úr aðild að EES.

 

Jón Baldvin kom okkur í EES

 

 Það kom í hlut Jóns Baldsins Hannibalssonar,þá utanríkisráðherra og formanns Alþýðuflokksins  að berjast fyrir aðild Íslands að EES. Mættu tillögur hans þar um mikilli andstöðu á alþingi í fyrstu. Sjálfstæðisflokkurinn var  í upphafi mjög andvígur tillögunum og vildi að fremur yrði gerður tvíhliða samningur milli Íslands og Evrópusambandsins. En með harðri baráttu tókst Jóni Baldvin að fá tillögur um aðild Íslands að EES samþykktar. Þar með fékk Jón Baldvin samþykkt á alþingi að Ísland samþykkti frelsin fjögur,þ.e. frjálsræði á sviði. vöruviðskipta,fjármagnsflutninga,vinnuaflsflutninga og þjónustuflutninga.Samningurinn fól einnig í sér fullt frelsi til atvinnurekstrar hvar sem er á svæði. EES.Það var þessi  samningur,sem færði  Íslandi  fullt frelsi á sviði viðskipta og þar á meðal frelsi í fjármagnsflutningum.

 

Jón Sigurðsson hóf afnám útflutningshafta

 

 Jón Sigurðsson,viðskiptaráðherra Alþýðuflokksins, gaf fjármagnsflutningana frjálsa að fullu til  þess að uppfylla   ákvæði EES-samningsins. Jón Sigurðsson hóf  einnig að  losa um höftin í útflutningsversluninni,opnaði t.d. fyrir útflutning á freðfiski en Jón Baldvin lauk því verki og gaf m.a. frjálsan útflutning á saltfiski. Áhrifamenn Sjálfstæðisflokksins í sölusamtökum fiskafurða voru algerlega andvígir  því að gefa útflutninginn frjálsan. Af framangreindu er ljóst,að ef einhver einn stjórnmálaflokkur á heiðurinn af því að hafa komið á viðskiptafrelsi  þá er það Alþýðuflokkurinn : Gylfi Þ.Gíslason hóf þetta starf í viðreisnarstjórninni og kom okkur í EFTA, Jón Baldvin kom okkur í EES og kom á  fullu frjálsræði í vöruviðskiptum og fjármagnsflutningum og hann ásamt Jóni Sigurðssyni  gerðu útflutningsverslunina frjálsa.

 

Sjálfstæðisfokkurinn dró lappirnar

 

Það er því hálf skoplegt,þegar  vissir íhaldsmenn eru að eigna Sjálfstæðisflokknum viðskiptafrelsið. Sjálfstæðisflokkurinn dró alltaf lappirnar í þessum málum. Ef sá flokkur hefði mátt ráða hefði Ísland ekki gengið í EES og þá hefði fullt frelsi á sviði fjármagnsflutninga  ekki tekið gildi.Við hefðum ef til vill ei að síður komið á frelsi í viðskiptum í samræmi við alþjóðlega þróun en fullyrða má,að það hefði tekið mikið lengri tíma.  

 

Björgvin Guðmundsson,viðskiptafræðingur

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn