Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Á að hlunnfara eldri borgara?

miðvikudagur, 19. október 2011

Alþýðusamband Íslands hefur gagnrýnt ríkisstjórnina harðlega fyrir að gera ráð fyrir því í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2012,að lífeyrir aldraðra og öryrkja og aðrar bætur hækki aðeins um 3,5% næsta ár,þegar gert er ráð fyrir 5,1% verðbólgu.Sem formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík  tek ég undir þessa gagnrýni ASÍ. Stutt er síðan velferðarráðherra kleip af hækkun lægstu bóta aldraðra til samræmis við hækkun lægstu  launa samkvæmt samkomulagi  ASÍ og ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna sl. vor.Lægstu laun hækkuðu samkvæmt kjarasamningum um 10,3% 1.júní sl. en lægstu bætur hækkuðu aðeins um 6,5%.Nú á aftur að höggva í sama knérunn og klípa af bótum aldraðra og öryrkja.
 
Fengu aðeins hálfa verðlagsuppbót 2008/2009
 
Um áramótin 2008/2009  fengu aldraðir og öryrkjar ekki þá verðlagsuppbót,sem þeim bar.Þá hafði verðbólgan verið tæp 20% en 3/4 lífeyrisþega fengu aðeins 9,6% verðlagsuppbót,þ.e. hálfa verðlagsuppbót.Aðeins þeir sem voru á strípuðum bótum fengu þá fulla verðlagsuppbót.Árið 2009 og 2010 hækkaði kaup láglaunafólks um 16% en á því tímabili fengu aldraðir og öryrkjar enga hækkun.Þeir máttu bera verðbólguna bótalaust.Það er því alltaf verið að höggva í sama knérunn.Það er alltaf verið að níðast á öldruðum og öryrkjum.
Þegar fulltrúar eldri borgara ræddu við Gylfa Arnbjörnsson forseta ASÍ um hækkun tryggingabóta til jafns við launahækkanir samþykkti hann  beiðni eldri borgara þar um en taldi erfitt eða ókleift fyrir ASÍ að biðja um leiðréttingu fyrir liðinn tíma (vegna 16% hækkunar á kaupi láglaunafólks).Eldri borgarar voru tiltölulega ánægðir með hækkun bóta 1.júní sl. en töldu þó að lægstu bætur hefðu hækkað of lítið miðað við hækkun lægstu launa.
 
Kjaraskerðingin frá 2009 verði afturkölluð strax
 
Eldri borgarar hafa ekki fengið neina leiðréttingu vegna  þeirrar kjaraskerðingar,er framkvæmd var á kjörum þeirra 1.júlí 2009.Eldri borgarar krefjast þess að sú kjaraskerðing verði strax afturkölluð.Staða ríkisfjármála hefur lagast það mikið,að unnt ætti að vera að afturkalla kjaraskerðinguna.Við erum að fara út úr kreppunni.Hagvöxtur er byrjaður.Þess vegna er leiðrétting á kjörum aldraðra tímabær.
 
 
Björgvin Guðmundsson
 
Birt í Morgunblaðinu 19.okt. 2011
 


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn