Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Pólitískur kattarþvottur

þriðjudagur, 18. janúar 2005

 

 

Guðni Ágústsson varaformaður Framsóknarflokksins sagði í viðtali við Guðmund Steingrímsson á Skjá 1 sl. sunnudag,að sú ákvörðun Íslands að vera á lista hinna staðföstu þjóða hefði ekki verið tekin í ríkisstjórn.Hefði sú ákvörðun verið tekin af Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni.Þegar Guðmundur Steingrímsson heyrði þetta sagði hann,að Kristinn H.Gunnarsson alþingismaður hefði þá haft rétt fyrir sér í þessu efni.Guðni tók undir það.Þessi yfirlýsing Guðna vakti mikla athygli og   vangaveltur um mikinn ágreining milli formanns og varaformanns Framsóknarflokksins.

 Í gær gaf forsætisráðherra yfirlýsingu um þetta mál en neitaði að ræða það við fjölmiðla. Yfirlýsing forsætisráðherra er alger kattarþvottur og ekkert nýtt er að finna í henni.Þar er málinu áfram drepið á dreif og sagt,að tillögu VG um að hafna árás á Írak hafi verið vísað frá í utanríkismálanefnd og “Íraksmálið” hafi verið rætt í ríkisstjórn 2 dögum fyrir innrás í Írak.Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu stendur það óhaggað,sem forsætisráðherra sagði sjálfur í Kastljósi 6.desember sl.,að engin formleg ákvörðun var tekin í ríkisstjórn um stuðning við innrás í Írak. Og það var ekki lagt fyrir utanríkismálanefnd að Ísland  yrði á lista hinna staðföstu þjóða,sem studdu innrásina. Almennar umræður um Íraksmálið skipta ekki máli í því sambandi.

 Ljóst er,að Guðni Ágústsson hefur fengið bágt  fyrir  yfirlýsingu sína í sjónvarpi sl. sunnudag. Í Morgunblaðinu í dag,18.janúar,birtist yfirlýsing frá Guðna þar sem hann dregur nokkuð í land. Er ljóst,að hann hefur fengið fyrirskipun um það. Í sama blaði birtist yfirlýsing frá Árna Magnússyni,félagsmálaráðherra,um að hann ætli ekki að bjóða sig fram gegn Guðna sem varaformaður!Hér er greinilega um valdatafl að ræða í Framsóknarflokknum. Guðna fannst sótt að sér og lét pólitískar yfirlýsingar flakka,sem komu formanni Framsóknar illa. Það er þá gengið í það að miðla málum og  Guðni fær nokkurs konar “pólitiska tryggingu” fyrir því að ekki verði reynt að fella hann við varaformannskjör. Þá dregur hann í land í Íraksmálinu. Þannig er pólitíkin.

 

Björgvin Guðmundsson

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn