Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Stjórn efnahagsmála í molum- ójöfnuður eykst í þjóðfélaginu

föstudagur, 29. desember 2006

 

 

um áramótin er ástæða til þessað líta yfir farinn veg og athuga stöðu stjórnmálanna,  þegar skammt er til þingkosninga en þær eiga fara fram í mai næsta vor. Það,sem blasir við um áramótin er  vöruskiptahallinn er meiri en nokkru sinni fyrr og verðbólga mikil. Vöruskiptahallinn á fyrstu 11 mánuðum ársins 2006 nemur 123 milljörðum. Er það mun  meiri halli en síðasta ár en þá var einnig methalli.En það er einmitt hinn mikli viðskiptahalli sem á stærsta þáttinn í því, að erlend matsfyrirtæki á sviði fjármála hafa gagnrýnt stjórn íslenskra efnahagsmála undanfarið og gefið okkur lakari lánshæfiseinkunn en áður. Hefur þessi gagnrýni leitt til lækkunar íslensku krónunnar. Miklar erlendar skuldir þjóðarbúsins í  heild og þar á meðal bankanna hafa einnig valdið gagnrýni erlendra matsstofnana. Ríkisstjórnin hefur gumað af góðri stjórn efnahagsmála  en sannleikurinn er sá, að stjórn efnahagsmála er í molum og stöðugleiki enginn. Krónan er á stöðugu flökti og aukinn þrýstingur á evra verði tekin upp.

 

Skattar hækkaðir á launafólki

 

 Á sama tíma og við blasir,að stjórn efnahagsmála hefur mistekist  hefur misskipting og ójöfnuður stóraukist í þjóðfélaginu. Ójöfnuður er meiri hér á landi en í nokkru hinna Norðurlandanna og stefnir óðfluga í það verða jafnmikill og í Bandaríkjunum , þar sem ójöfnuður er einna mestur. Ójöfnuður hefur aukist hér á landi jafnt og þétt frá 1995 og á sama tíma hefur skattakerfið orðið óréttlátara. Skattar hafa verið hækkaðir á fátækum og launafólki öllu eða á 90% skattgreiðenda en skattar hafa verið lækkaðir á hinum hæst launuðu.Fátækt hefur aukist í landinu undanfarin ár.

 

Níðst á öldruðum og öryrkjum

 

Á tímabilinu frá 1995 hafa aldraðir og öryrkjar ekki fengið  sömu hækkun á lífeyri sínum eins og láglaunafólk á almennum vinnumarkaði hefur fengið á launum sínum. Fram þeim tíma var það lögbundið aldraðir og öryrkjar fengju  sömu hækkun og verkafólk en þessi tengsl voru rofin. Tugir milljarða hafa verið hafðir af öldruðum og öryrkjum vegna þessarar breytingar.Alls hafa 40 milljarðar verið hafði af öldruðum vegna þessa síðustu 11 árin.Það er réttlát krafa,að ríkisstjórnin skili öldruðum þessum fjármunum.

 

Ranglátt kvótakerfi

 

Það er eitt brýnasta  málið í dag leiðrétta myndarlega kjör aldraðra og öryrkja. En ekki síður er brýnt leiðrétta hið rangláta kvótakerfi. Kerfið hefur lagt byggðir landsins víða út um land í eyði. Í margri sjávarbyggð er  sem sviðin jörð þar kvótar hafa verið fluttir á brott. Nokkrir stórir aðilar braska með kvóta og græða milljarða á braskinu. Þeir fengu kvótana fría í upphafi. Það er krafa almenning þessu kerfi verði breytt og braskið stöðvað.

 

Valdníðslan heldur áfram

 

Einkenni  ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er ójöfnuður og misskipting. En valdníðslan hefur einnig sett mark sitt á þessa ríkisstjórn. Það er  alltaf verið veita vinum og vandamönnum embætti. En einnig hefur þessi ríkisstjórn stöðugt verið misbeita valdi sínu.Ríkisstjórnin hefur gerst sek um valdníðslu hvað eftir annað, síðast þegar Björn Friðfinnsson,ráðuneytisstjóri, var hrakinn úr embætti, sem hann var forsetaskipaður í  og hafði gegnt með sóma. Einu sakir hans voru þær, hann hafði aðrar sjórnmálaskoðanir en viðskiptaráðherrar Framsóknar. Ráðherrar Framsóknar þurftu ekki hugsa um það hvað það kostaði ríkissjóð hrekja Björn úr embætti. Þetta er hrein valdníðsla.

 

Stjórnarskipti  eru nauðsyn

 

Nauðsynlegt er koma ríkisstjórn misskiptingar og ójafnaðar frá næsta vor. því ber stefna.

 

 Björgvin Guðmundsson

Birt í Fréttablaðinu 12.janúar 2007

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn