Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Röðin er komin að"R-lista" ríkisstjórn

mánudagur, 14. maí 2007

Eitt besta framtak félagshyggjumanna var framboð R-listans í Reykjavík undir forustu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.R-listinn náði frábærum árangri og sigraði Sjálfstæðisflokkinn í þrennum kosningum.Framboð og árangur R-listans í Reykjavík sýndi hvað félagshyggjumenn geta gert með góðu  samstarfi og þegar vel er að verki staðið .Er  ekki unnt að efna til slíks samstarfs um  landsstjórnina? Jú vissulega. Það er unnt að efna til nokkurs konar " R- lista" samstarfs um ríkisstjórn landsins.Ég tel , að " R- lista" ríkisstjórn sé æskilegasta ríkisstjórnin eins og staðan er nú.Samfylking, Vinstri græn og Framsókn ættu nú að taka höndum saman um stjórn landsins.Það yrði nokkurs konar " R-lista " samstarf.
 
Ekki allir Framsóknarmenn með íhaldinu
 
Í þætti Egils Helgasonar, Silfri Egils, 13.mai var rætt um úrslit kosninganna og hugsanlegt stjórnarsamstarf. Meðal þátttakenda í þættinum var nýr þingmaður Framsóknar, Bjarni Harðarson.Hann sagði, að hann teldi vænlegra fyrir Framsóknarflokkinn að taka þátt í ríkisstjórn með vinstri flokkunum heldur en að halda áfram samstarfi með Sjálfstæðisflokknum. Bjarni sagði m.a. í þessu sambandi, að Framsóknarflokkurinn hefði greinilega misst fylgi til vinstri flokkanna.Til þess að endurheimta það fylgi yrði Framsókn að fara í vinstri stjórn. Þetta sjónarmið virðist rökrétt. Ef Framsókn heldur áfram að vinna með Sjálfstæðisflokknum má reikna með því, að fylgið haldi áfram að fara frá Framsókn yfir á vinstri flokkana.Raunar má segja, að  Framsókn bjóðist nú einstakt tækifæri. Ef "kaffibandalagið" hefði fengið meirihluta í kosningunum hefði það myndað stjórn án aðildar Framsóknar. En svo fór ekki og þess vegna er Framsókn nú eins og oft áður í lykilhlutverki og getur ráðið því hvort hér situr hægri stjórn eða vinstri stjórn.
 
Morgunblaðið reynir að blekkja Framsókn
 
Morgunblaðið segir í leiðara  14.mai, að
Framsókn geti alveg eins endurskipulagt sig  í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum eins og utan hennar.Þetta er blekking. Og þarna er Mbl. að reyna að  plata Framsókn.Það er alger sjálfseyðing fyrir Framsókn að vera áfram í ríkisstjórn með íhaldinu. Framsókn galt algert afhroð í þingkosningunum.Flokkurinn tapaði 5 þingsætum,fór úr 12 sætum í 7. Flokkurinn fékk 11,7% en það er minnsta fylgið í sögu flokksins. Flokkurinn hefur stöðugt tapað fylgi frá því flokkurinn settist í stjórn með íhaldinu 1995. Í kosningunum  1995  fékk flokkurinn  23,3% en eftir 4 ár í stjórn með íhaldinu fór fylgið í 18,4%,árið 2003 í 17,7 % og nú í 11,7%,þ.e. algert hrun.
 
Samfylkingin tapaði 2 þingmönnum
 
Samfylkingin fékk 26,8%  nú  og missti 2 menn  en tæp 31%   árið   2003. Hvers vegna fékk Samfylkingin ekki meira fylgi? Sumir benda á, að þetta fylgi sé mikið í sögulegu samhengi  og það er rétt. Fylgið er álíka mikið  hjá vinstri flokkunum nú og var hjá A- flokkunum 1978 en þá unnu þeir stórsigur.En þó þetta sé rétt er fylgið nú ekki nóg..Samfylkingin vann   stórsigur 2003 með Ingibjörgu Sólrúnu sem forsætisráðherraefni.Það var því búist ið, að eftir að  Ingibjörg Sólrún  væri orðin formaður mundi hún vinna enn stærri sigra en svo varð ekki. Hver er skýringin? Ég held ,að hún liggi í breyttri "taktik".Samfylkingin hefur verið mikið mildari í málflutningi nú en áður. Samfylkingin hefur farið silkihönskum um Sjálfstæðisflokkinn.Fyrir kosningarnar 2003 gerði Samfylkingin harða hríð að Sjálfstæðisflokknum og uppskar tæp 31% fylgi. Milda línan skilaði 26, 8%.Það ekki nóg. Annað atriði vill ég nefna. Það er kvótamálið.Samfylkingin  minntist ekki á  kvótakerfið og ranglæti þess í kosningabaráttunni. Í  kosningunum  2003 ræddi Samfylkingin þetta mál mikið.Hún fékk mörg atkvæði út á  það.Ég veit , að núna missti Samfylkingin mörg atkvæði af þessum sökum.
Samfylkingin verður að vera trú stefnumálum sínum.
 
Björgvin Guðmundsson 


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn