Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!

fimmtudagur, 2. mars 2017

Hagsmunamál aldraðra eru fleiri en kjaramálin.Hjúkrun og umönnun aldraðra skiptir einnig miklu máli.Á síðasta ári dvöldust 2407 eldri borgarar, 67 ára og eldri, á hjúkrunarheimilum.Af þeim voru flestir á höfuðborgarsvæðinu eða 1372.Vistmönnum á hjúkrunarheimilum hefur fjölgað mikið eftir því, sem þjóðin hefur elst. Árið 1998 voru 2000 eldri borgarar á hjúkrunar-og dvalarheimilum aldraðra en árið 2015 voru þeir orðnir 2710. Það hefur verið mikið vandamál undanfarn ár hvað biðlistar eftir rými á hjúkrunarheimilum hafa verið langir.Biðtiminn eftir rými þar er nú rúmlega 6 mánuðir skv upplýsingm landlæknis. Það er alltof langur tími. Skilyrði fyrir því að fá vist á hjúkrunarheimili hafa verð hert. Nú verða allir, sem sækja um hjúkrunarheimili, að fá færni- og heilsumat Í stuttu máli er það þannig, að enginn fær vist á hjúkrunarheimili i dag nema hann hafi áður nýtt öll úrræði, sem eru í boði fyrir þá, sem dveljast heima, svo sem heimahjúkrun og jafnvel hvíldarinnlögn á hjúkrunarheimili.Það þýðir, að ekki er sótt um hjúkrunarheimili fyrr en heilsan leyfir ekkir að dvalist sé lengur í heimahúsi .Heilsunni getur hrakað ört, þegar svo er komið og ef það dregst mjög lengi eftir það að fá rými á hjúkrunarheimili, jafnvel í 6 mánuði, getur viðkomandi eldri borgari verið orðinn mjög slæmur til heilsunnar loks, þegar hann fær inni á hjúkrunarheimili..Hann nýtur betur dvalar á hjúkrunarheimili, ef hann fær dvöl þar áður en hann er orðinn of heilsuveill. Æskilegt er,að eldri borgarar geti dvalist sem lengst í heimahúsum hjá ástvinum sínum.En þar eru einnig vandamál.Heimahjúkrun er undirmönnuð. Hún hefur ekki fengið nægilegt fjármagn til þess að ráða mætti nægilega marga hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða..Það eru því bæði vandamál vegna skorts á hjúkrunarheimilum og vegna undirmönnunar í heimahjúkrun.Nauðsynlegt er að gera átak nú til þess að bæta úr hvoru tveggja.Stjórvöld segja, að góðæri ríki í landinu og því ætti að vera kjörið tækifæri nú til þess að bæta úr þessu.Það er mikilvægara en að sýna afgang á fjárlögum. Samandregið er ástandið í málefnum aldraðra þetta: Kjör eldri borgara, sem eingöngu hafa lífeyri frá almannatryggingum, eru við hungurmörk.Lífeyrir sá ,sem stjórnvöld skammta öldruðum, dugar ekki til framfærslu.Aldraðir, sem eru í þessum sporum, verða iðulega að neita sér um læknishjálp eða lyf.Það er til skammar fyrir land, sem kallar sig velferðarríki.Skortur er á hjúkrunarheimilum og heimahjúkrun er undirmönnuð. Björgvin Guðmundsson Viðskiptafræðingur


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn