Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara

fimmtudagur, 16. febrúar 2017

Hvað þarf eldri borgari mikið sér til framfærslu? Í dag hefur sá sem þarf að treysta eingöngu á almannatryggingar, 197 þúsund krónur á mánuði eftir skatt.(Þeir,sem eru í hjónabandi eða sambúð).Þetta er ekki prenvilla.Lífeyrir þessa fólks nær ekki 200 þúsund kr á mánuði eftir skatt á sama tíma og sagt er ,að góðæri sé á Íslandi og meðaltekjur í þjóðférlaginu eru 620 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt. Miklar launahækkanir sl. 2 ár Undanfarin 2 ár hafa orðið gifurlega miklar launahækkanir í landinu.Launafólk,faglært og ófaglært, hefur fengið hækkanir á bilinu 14,5-55%.Alþingismenn fengu 55% launahækkun á síðasta ári,ráðherrar fengu 44% hækkun og æðstu embættismenn fengu allt að 48% hækkun á síðasta ári,sem gilti afturvirkt í 18 mánuði! Á meðan þessar miklu hækkanir áttu sér stað voru aldraðir og öryrkjar skildir eftir.Þeir fengu mjög litla hækkun á lífeyri sínum.Um áramótin fengu þeir eldri borgarar,sem nú hafa 197 þúsund krónur á mánuði 12 þúsund króna hækkun á mánuði.Það voru öll ósköpin. Lífeyrir dugar ekki fyrir öllum útgjöldum Það er engin leið að lifa sómasamlegu lífi af 197 þúsund krónum á mánuði.Húsaleiga hefur stórhækkað svo og allur húsnæðiskostnaður.Algeng húsaleiga fyrir 2ja-3ja herbergja íbúð er í dag 130-200 þúsund kr á mánuði. Þegar búið er að borga húsaleigu,rafmagn og hita er lítið eftir fyrir öllum öðrum útgjöldum,mat,fatnaði,hreinlætisvörum,síma,sjónvarpi og rekstri tölvu. Erfitt eða ókeift er að reka bíl af þessum lága lífeyri.Ef ekki er um bíl að ræða þarf að borga í strætisvagnagjöld eða annan samgöngukostnað. Lífeyrir er svo naumt skammtaður til aldraðra, að algengt er, að hann dugi ekki fyrir öllum brýnustu útgjöldum.Læknishjálp og lyf verða oftast útundan og stundum matur.Slík meðferð á öldruðum er að sjálfsögðu brot á stjórnarskránni, brot á mannréttindum. Naumt skammtað til aldraðra Hvernig stendur á því,að velferðarlandið Ísland skammtar eldri borgurum svo nauman lífeyri og hér hefur verið lýst? Það er óskiljanlegt.Ráðamenn tala mikið um það, að efnahagsmálin séu í góðu lag ; góðæri sé mikið. En góðærið hefur alveg farið framhjá eldri borgurum.Lífeyrir á ekki aðeins að duga fyrir brýnustu nauðsynjum; lífeyrir á að duga til þess að aldraðir geti lifað með reisn þetta síðasta skeið ævi sinnar.Þeir þurfa að geta veitt sér eitthvað og gefið barnabörnum sínum jólagjafir og afmælisgjafir. Lyfta þarf kjörum aldraðra myndarlega! Það hefur verið reiknað út, að hin Norðurlöndin verji um það vil 100 milljörðum meira á ári til eldri borgara,öryrkja og velferðarkerfisins í heild en gert er hér á landi.Þó er hagvöxtur meiri hér en þar og hefur verið um skeið og Ísland er ekki síður ríkt en hin Norðurlöndin, ef til vill ríkara.Hvers vegna eru kjör aldraðra og öryrkja þá svo miklu verri hér en á hinum Norðurlöndunum.Ég tel,að að sé vegna skilningsleysis íslenska stjórnmálamanna á vanda eldri borgara og öryrkja á Íslandi.Hér þarf að verða breyting á .Það er kominn tími til þess að lyfta kjörum aldraðra og öryrkja myndarlega upp. Ég tel,að lágark fyrir eldri borgara og öryrkja sé 400 þúsund á mánuði fyrir skatt,305 þúsund eftir skatt.Það er engin leið að lifa sómasamlegu lífi af lægri upphæð. Björgvin Guðmundsson fyrrverandi borgarfulltrúi Birt í Mbl. 16.feb. 2017


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn