Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Stærsta kosningaloforðið óuppfyllt!

þriðjudagur, 22. desember 2015

Það er algengt, að stjórnmálamenn gefi mikil loforð í kosningum en standi síðan ekki við þau. En það er hins vegar sjaldgæft, að ráðamenn, sem rofið hafa kosningaloforðin, tali eins og þeir hafi efnt þau! En það hefur gerst hjá ráðamönnum núverandi stjórnarflokka. Ætluðu að leiðrétta kjaragliðnun Stjórnarflokkarnir lofuðu því í alþingiskosningunum 2013 að afturkalla alla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá 2009. Jafnframt lofuðu þeir að leiðrétta alla kjaragliðnun tímabilsins 2009-2013 (krepputímans).Mesta kjaraskerðingin fólst i kjaragliðnuninni.Á umræddu tímabili var lífeyrir frystur langtímum saman þó laun hækkuðu.Það kallast kjaragliðnun. Hún var mikil þá .Og nú hefur orðið ný kjaragliðnun á timabilinu 2013-2015. Mest hefur kjaragliðnunin orðið á yfirstandandi ári.Ekkert hefur verið gert í því að leiðrétta kjaragliðnun krepputímans. Og ekkert hefur heldur verið gert í því að leiðrétta kjaragliðnun timabilsins 2013-2015. Hækka þarf lífeyri um 15% til þess að leiðrétta hana. Aðeins lítið afturkallað ennþá Kjaraskerðingin 2009 hefur verið afturkölluð að hluta. Þar var um 6 atriði að ræða og sumarið 2013 afturkallaði núverandi stjórn tvö þeirra.Hún afturkallaði skerðingu á frítekjumarki vegna atvinnutekna aldraðra og færði til fyrra horfs.Það gagnaðist þeim,sem voru á vinnumarkaðnum. Og hún afturkallaði það, að greiðslur úr lífeyrissjóði væru taldar með tekjum við úreikning grunnlífeyris. Sú ráðstöfun hafði skert grunnlífeyri hjá þeim, sem höfðu háar greiðslur úr lífeyrissjóði. Þriðja atriðið, sem hefur hlotið leiðréttingu, féll úr gildi af sjálfu sér, þar eð það var tímabundið. Það var skerðing tekjutryggingar, sem féll úr gildi í árslok 2013. Meðal skerðinga frá 2009, sem eftir er að leiðrétta, er eftirfarandi: Skerðing á frítekjumarki vegna fjármagnstekna.Og skerðing á aldurstengdri örorkuuppbót en hún var skert með tekjutengingu.Oddvitar stjórnarflokkanna segja alltaf: Við erum búnir að afturkalla kjaraskerðinguna frá 2009! En það er ekki rétt. Hækka þarf lífeyri um 20-25% vegna loforðs Kjaragliðnunin á krepputímanum er langmesta kjaraskerðingin sem fyrr segir. Hún er óleiðrétt.Það þarf að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja um 20-25 % til þess að leiðrétta hana.Talnakönnun Benedikts Jóhannessonar kannaði fyrir Öryrkjabandalag Íslands hvað kjaragliðnunin væri mikil. Niðurstaðan var þessi: Heildartekjur öryrkja ( fjármagnstekjur innifaldar) hækkuðu um 4,7% á tímabilinu 2009-2013 en á sama tímabili hækkaði launavísitalan um 23,5%. Kjaragliðnun var 18,8%. Kjaranefnd Félags eldri borgara í Rvk fær út 23% kjaragliðnun hjá öldruðum á sama tímabili.Borin var saman breyting á lágmarkslaunum og hækkun lágmarkslífeyris einhleypra eldri borgara frá TR, sem einungis höfðu tekjur frá almannatryggingum á tímabilinu 2009-2013. Óvirðing við kjósendur! Stjórnarflokkarnir minnast aldrei á kjaragliðnunina.Það er þó skjalfest, að þeir lofuðu að leiðrétta hana ásamt annarri kjaraskerðingu krepputímans.Talsmenn stjórnarflokkanna tala eins og búið sé að leiðrétta alla umrædda kjaraskerðingu en það er langur vegur þar frá.Bjarni Benedktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lofaði því einnig fyrir þingkosningarnar 2013 að afnema allar tekjutengingar almannatrygginga.Hann hefur ekki staðið við það.Það er óvirðing við kjósendur að svíkja kosningaloforð. En það er jafnvel enn alvarlegra að rjúfa kosningafyrirheitin og segja síðan við kjósendur að búið sé að efna kosningaloforðin!Hvað kallast slík framkoma? Björgvin Guðmundsson Formaður Kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Birt í Fréttablaðinu 22.des. 2015


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn