Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Engin þörf á því að breyta Íbúðalánasjóði i heildsölubanka

þriðjudagur, 18. apríl 2006

 

Forsætisráðherra skýrði frá því á blaðamannafundi 13.mars 2006, í undirbúningi væri breyta Íbúðalánasjóði í heildsölubanka. Þetta væri ekki endanlega ákveðið en svo virtist sem sátt væri nást um málið milli ríkis og bankanna.Sjálfstæðisflokkurinn hefur sótt það fast undanförnu breyta Íbúðalánasjóði í heilsölubanka og bankarnir hafa barist hatrammlega fyrir þessu.Seðlabankinn studdi þessa breytingu á síðasta ári. vísu mundu bankarnir helst vilja, Íbúðalánasjóður væri lagður niður og bankarnir tækju alfarið við hlutverki sjóðsins.Margir innan Sjálfstæðisflokksins hafa stutt þá kröfu bankanna.Fram til þessa hefur Framsókn staðið gegn þessari kröfu Sjálfstæðisflokksins en   virðist  Framsókn hafa látið undan eins og alltaf hefur gerst í deilumálum við Sjálfstæðisflokkinn undanfarin ár. Það gerðist þegar íhaldið vildi leggja niður Þjóðhagsstofnun. Það gerðist þegar íhaldið vildi skera niður framlag til öryrkja úr 1500 milljónum króna í 1000 milljónir þrátt fyrir loforð um 1500 milljónir og þannig mætti áfram telja.

 

Engin rök fyrir breytingu

 

En hvers vegna þarf breyta Íbúðalánasjóði í heildsölubanka? Engin frambærileg rök hafa verið flutt fyrir þeirri breytingu.Ég enga nauðsyn á þeirri breytingu. Íbúðalánasjóður á mínu mati starfa í óbreyttri mynd.Hann hefur mjög mikilvægu hlutverki gegna sem er   tryggja, allir landsmenn sitji við sama borð varðandi  það íbúðalán. Og það er alveg ljóst, Íbúðalánasjóður hefur haldið vöxtum á íbúðalánum niðri. Ef Íbúðalánasjóður væri lagður niður mundu vextir á íbúðalánum strax hækka. Bankarnir og sjálfstæðismenn klifa á því, Íbúðalánasjóður njóti ríkisábyrgðar og hafi því leyti til forréttindi umfram bankana og það er rétt. En einmitt þess vegna er unnt gera þá kröfu til sjóðsins,að hann mismuni ekki landsmönnum eftir búsetu.

 

Lánaði bönkum og sparisjóðum

 

Íbúðalánasjóður fór á  síðasta ári út á þá vafasömu braut lána bönkum og sparisjóðum 80 milljarða til þess endurlána  húsbyggjendum.Félagsmálanefnd alþingis tók það mál fyrir og var í nefndinni hreyft alvarlegum, athugasemdum við þessar lánveitingar sjóðsins til bankanna. Var talið, hæpið væri þessar lánveitingar sjóðsins stæðust lög. Þessar lánveitingar Íbúðarlánasjóðs voru stöðvaðar. .Bankar og sparisjóðir lánuðu  íbúðareigendum allt 25 milljónir króna á íbúð af því fjármagni,sem Íbúðalánasjóður lánaði þeim. En lögum samkvæmt mátti sjóðurinn þá aðeins lána 15,9 milljónir til hvers einstaklings vegna íbúðarkaupa. Er því ljóst,að þarna var Íbúðalánasjóður fara í kringum lögin. Sjóðurinn hafði fjármagn og var reyna taka þátt í samkeppni við bankana,sem voru farnir lána mikið  hærra  út á hverja íbúð. Þrátt fyrir þessi mistök Íbúðalánasjóðs tel ég, standa eigi vörð um sjóðinn og hann eigi starfa í óbreyttri mynd. Bankarnir eiga ekki ráða skipulagi Íbúðalánasjóðs.

 

Liður í leggja niður Íbúðarlánasjóð

 

Framsóknarflokkurinn lagði niður verkamannabústaðakerfið ( félagslega íbúðakerfið) með einu pennastriki.Í staðinn hét það svo, fólk, sem uppfyllti viss skilyrði, ætti geta keypt félagslegar íbúðir á frjálsum markaði með fjármunum á lægri vöxtum frá Íbúðalánasjóði.Þessi leið hefur verið þrengjast og hverfur sjálfsagt fljótlega. vill Framsókn og íhaldið breyta Íbúðalánasjóði í heildsölubanka. Ef það verður gert er það fyrsta skrefið í áttina til þess leggja sjóðinn niður. Þess vegna ber varast þessa breytingu. Best er, sjóðurinn starfi í óbreyttri mynd.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Morgunblaðinu 18.apríl 2006

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn