Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Kvótamálinu verður ekki sópað undir teppið

mánudagur, 25. júní 2007

Gagnrýnendum kvótakerfisins hefur bætst nýr og öflugur liðsmaður.Sá heitir Sturla Böðvarsson og er forseti alþingis og fyrrverandi samgönguráðherra. Þetta er mikið fagnaðarefni, ekki síst vegna þess,að Samfylkingin hefur að verulegu leyti brugðist í baráttunni gegn kvótakerfinu undanfarin misseri. Fyrir kosningarnar 2003 barðist Samfylkingin af miklum þrótti gegn hinu rangláta kvótakerfi og setti fram skýrar hugmyndir um það hvernig ætti að vinda ofan af því. En fyrir kosningarnar núna minntust frambjóðendur Samfylkingarinnar varla á kvótakerfið og lítið sem ekkert er að finna um það í stjórnarsáttmála nýju stjórnarinnar.Olli það mér miklum vonbrigðum af ekki skyldu vera ákvæði í stjórnarsáttmálanum um endurskoðun kvótakerfisins. Hið eina sem þar var að finna var að athuga ætti hver áhrif kerfisins hefðu verið á byggðir landsins. Það þarf ekki að athuga það. Það liggur fyrir t.d. á Flateyri og vítt og breytt um byggðir landsins. Þar er sem sviðin jörð eftir afleiðingar kvótakerfisins. Stór útgerðarfyrirtæki hafa keypt upp fiskiskipin ásamt kvótum í smærri byggðum um allt land og farið síðan á brott með kvótana og skilið byggðirnar eftir kvótalausar. Það var ekki ætlunin þegar kvótakerfið var sett á fót,að þetta yrðu afleiðingar kerfisins. Þess vegna þarf að endurskoða kefið eða lögleiða nýtt. Sturla Böðvarsson hefur hér lög að mæla.

Leiðrétta þarf ójöfnuðinn

Samfylkingin lagði mikla áherslu á það fyrir kosningar,að ójöfnuður hefðu aukist mikið í þjóðfélaginu m.a. vegna tilkomu kvótakerfisins. Samfylkingin kvaðst vilja leiðrétta þennan ójöfnuð. Það er unnt að gera með aðgerðum í skattmálum,málefnum almannatrygginga og með leiðréttingu á kvótakerfinu.Ákvæði eru í stjórnarsáttmálanum um leiðréttingar í skattmálum og á almannatryggingum en ekki varðandi kvótakerfið. Það eru mikil vonbrigði. En kvótamálinu verður ekki sópað undir teppið.Ef ríkisstjórnin ætlar ekki að leiðrétta þetta rangláta kefi mun þjóðin taka til sinna ráða. Ræða Sturlu Böðvarsssonar er til marks um það að í öllum flokkum sjá menn ranglæti þessa kerfis og menn sjá einnig nú,að kerfið hefur ekki dugað til þess að vernda þorskstofninn. Hafrannróknarstofnun leggur nú til,að veiðarnar verði skornar niður um þriðjung á næsta fiskveiðiári og aðeins verði leyft að veiða 130 þúsund tonn í þorskígildum.Tillaga Hafró leiðir í ljós,að ástand fiskistofnanna er mjög slæmt eftir að kvótakerfið hefur verið við líði um langt skeið. Kerfinu hefur mistekist að vernda fiskistofnana. Kerfinu hefur mistekist ætlunarverk sitt en það hefur innleitt mikið ranglæti í íslenskt samfélag,fært mikil auðæfi á fárra hendur og “lögleitt” stórfellt brask með veiðiheimildir,sem verður að stöðva.
Ástandið á Flateyri og raunar í Vestmannaeyjum líka hefur opnað augu marga fyrir því að þetta kvótakerfi getur ekki gengið lengur. Því verður að gerbreyta eða afnema á vissum aðlögunartíma. Þó ríkisstjórnin sjái þetta ekki þá sér allur almenningur það.Ég segir eins og Sturla Böðvarsson : Það verður að stokka fiskveiðistjórnarkerfið upp ef byggðir landsins eiga ekki að hrynja.


Björgvin Guðmundsson

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn