Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Aðildarviðræðum Íslands við ESB ítt út af borðinu

miðvikudagur, 3. desember 2003

 

 

 Noregur gæti sótt um aðild eftir rúm 2 ár

 

Aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið  er ítt út af borðinu í stjórnarsáttmála  endurnýjaðrar stjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Þar segir,að treysta skuli samskiptin við ESB á grundvelli samningsins um EES. Þetta þýðir,að ríkisstjórnin telur,að EES-samningurinn dugi fyrir Ísland á kjörtímabilinu. Ýmsir sérfræðingar í málefnum ESB hafa haldið því fram,að EES – samningurinn væri að veikjast og að hann yrði haldlítill fyrir Ísland innan tíðar.Utanríkisráðherra hefur talað á svipaðan hátt og  hefur mátt á honum skilja,að Ísland yrði að huga að aðild að ESB  af þessum sökum. Ljóst er að þessi sjónarmið hafa orðið  undir við gerð nýs stjórnarsáttmála. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft sitt fram í Evrópumálunum.

 

 Gengur Noregur í ESB 2005?

 

Samkvæmt nýjustu skoðanankönnunum í Noregi er nú mikill meirihluti landsmanna þar fylgjandi því, að Noregur sæki um aðild að Evrópusambandinu. Hefur meirihlutinn,sem fylgjandi er ESB, verið að aukast. Ekki er þó búist við því að ríkisstjórn Bondeviks,sem nú er við völd í Noregi,muni sækja um aðild að ESB. Ríkisstjórnin er andvíg aðild að ESB enda þótt talið sé að forsætisráðherrann sé að snúast hægt á sveif með ESB. Ekkert mun því gerast í þessu máli í Noregi fyrr en eftir næstu þingkosningar þar en þær verða árið 2005. En strax eftir næstu þingkosningar í Noregi er tíðinda að vænta  í  þessu máli þar. Er líklegt, að Noregur sæki um aðild að ESB strax eftir kosningarnar. Margir telja,að Ísland verði þá að fylgja í kjölfarið,þar eð ef Noregur  gangi úr EFTA og í ESB séu dagar EES-samningsins taldir. En auk þess muni samkeppnisstaða Íslands gagnvart Noregi þá versna á mörkuðum ESB. Miðað við stjórnarsáttmálann getur Ísland hins vegar ekkert gert í þessu  máli fyrr en eftir 4 ár,þ.e. eftir næstu kosningar.

 

Fæst undanþága í sjávarútvegsmálum?

 

Stóra spurningin í þessu máli er hvort undanþága fæst hjá ESB í sjávarútvegsmálum.Noregur  hefur áður gert aðildarsamning við ESB og fékk þá tímabundnar undanþágur í sjávarútvegsmálum. Samningur Noregs við ESB var  af Íslendingum talinn lélegur í sjávarútvegsmálum. Ísland hefði ekki getað samþykkt slíkan samning. Ekki fæst svar við þessari spurningu fyrr en í aðildarviðræðum. Ýmsir telja,að Íslands ætti eins að geta fengið undanþágu í sjávarútvegsmálum eins og Svíar fengu undanþágu fyrir sinn norðlæga landbúnað.Ýmsar eyjar  hafa einnig fengið undanþágur hjá ESB.  Gallinn er aðeins sá,að  íslenskur sjávarútvegur stendur vel og því er ekki unnt að nota þá röksemd gagnvart ESB,að sjávarútvegurinn hér þurfi stuðning.Við verðum því að finna aðrar röksemdir. Þetta er einnig spurning um vilja hjá ESB. Nú eru ýmsar  nýjar þjóðir að gerast aðilar að ESB. Það er því að verða til nýtt og stækkað Evrópusamband. Ef  til vill verður aðveldara fyrir Ísland að fá undanþágu hjá því.

 

Björgvin Guðmundsson

viðskiptafræðingur


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn