Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Eldri borgarar í hjónabandi eða sambúð fá lægri lífeyri frá TR en einhleypir eldri borgarar

fimmtudagur, 22. janúar 2015

Mikil viðbrögð urðu við grein minni um skammarlega lágan lífeyri eldri borgara, sem birtist í Fréttablaðinu 8.þ.m. Ég fékk margar upphringingar út af greininni.Tekið var undir það að hækka þyrfti lífeyrinn ríflega svo unnt væri að lifa mannsæmandi lífi af honum en það væri ekki unnt í dag.Nokkrir bentu á, að þó lífeyrir einhleypinga frá TR væri lágur væri hann enn lægri hjá þeim, sem væru í hjónabandi eða í sambúð.(Í báðum tilvikum miðað við þá,sem einungis hafa tekjur frá TR.) Það er rétt. Þeir eldri borgarar sem eru í hjónabandi eða í sambúð fá lægri lífeyri en hinir, sem búa einir.Spurningin er sú, hvort það sé réttlátt.Ég tel svo ekki vera.Það er búið að afnema það, að tekjur maka skerði lífeyri aldraðra frá almannatryggingum.Það var mannréttindabrot, að svo skyldi gert. En er það ekki líka mannréttindabrot að skerða lífeyri þeirra eldri borgara, sem búa með öðrum.Ég tel svo vera.Það á að afnema þessar skerðingar bæði hjá öldruðum og öryrkjum.Þessi lífeyrir er svo lágur, að það er út í hött að skerða hann vegna hjónabands eða sambúðar. Tímabært að afnema skerðinguna Ef litið er á þær fjárhæðir ,sem lífeyrisþegar fá frá TR í janúar 2015 kemur eftirfarandi í ljós: Lífeyrir aldraðra sem búa einir, er 192 þús. kr. á mánuði eftir skatt.Lífeyrir þeirra sem búa með öðrum er 172 þús. kr.á mánuði eftir skatt ( Hefur hækkað í janúar).Þetta er skerðing, sem nemur 20 þús. kr. á mánuði.Það er óeðlileg skerðing.Það á ekki að refsa öldruðum fyrir að vera í hjónabandi eða í sambúð.Það eru mannréttindi, að eldri borgarar haldi sömu upphæð lífeyris frá TR hvort sem þeir búa einir eða með öðrum.Árum saman var það mannréttindabrot framið á eldri borgurum, að lífeyrir þeirra frá almannatryggingum var skertur vegna tekna maka.Það var afnumið 2008.Það er tími til kominn að afnema skerðingu lífeyris vegna búsetu með öðrum.Það er alltaf verið að fremja mannréttindabrot á öldruðum og öryrkjum. Þegar kjör lífeyrisþega voru skert 1.júlí 2009 vegna efnahagsáfalls þjóðarinnar tel ég, að mannréttindabrot hafi verið framið.Það er kveðið svo á í mannréttindasáttmálum,sem Ísland hefur samþykkt , að áður en kjör lífeyrisþega eru færð til baka vegna efnahagsáfalla skuli leitað annarra leiða. Það var ekki gert 2009. Ríkið skuldar lífeyrisþegum 30 milljarða Ríkið skuldar lífeyrisþegum rúmlega 12 milljarða kr. vegna kjaraskerðingarinnar frá 2009.Og ríkið skuldar öldruðum og öryrkjum 17 milljarða vegna kjaragliðnunar krepputímans.Lífeyrisþegar hafa ekki efni á því að lána ríkinu þessar upphæðir lengur. Þeir þurfa að fá þær greiddar strax. Björgvin Guðmundsson Birt í Fréttablaðinu 22.jan. 2015


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn