Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ríkisstjórnin níðist áfram á lífeyrisþegum: Laun hækka um 20,7 % 2015 og 2016 en lífeyrir hækkar aðeins um 12,7%

sunnudagur, 24. janúar 2016

Lífeyrir aldraðra og öryrkja frá almannatryggingum á lögum samkvæmt að hækka í samræmi við launaþróun.Eftir þessu hefur núverandi ríkisstjórn ekki farið.Lítum á staðreyndir málsins: Lágmarkslaun hækkuðu sl ár um 14,5%?(1.mai)en lífeyrir hækkaði aðeins um 3%.Hér vantar 11,5 prósentustig.Ef litið er á hækkun annarra launa vantar meira,þar eð önnur laun hækkuðu miklu meira,t.d.fékk Fiskvinnslufólk 30% hækkun byrjunarlauna,nýlæknar fengu 25% hækkun og kennarar og blaðamenn fengu meiri hækkun en verkafólk.Nú hefur verkafólk og aðrir launþegar samið um launahækkun yfirstandandi árs:Laun hækka um 6,2% strax frá áramótum? Þetta þýðir að laun hækka samanlagt um 20,7% á árinu 2015 og 2016 en lífeyrir hækkar aðeins um 12,7% bæði árin.Hér vantar 8 prósentustig.Auk þess ber að taka með í reikninginn,að verkafólk fékk 14,5% launahækkunina frá 1.mai en lífeyrisþegar ekki fyrr en um áramót.Allir aðrir fengu afturvirkar launahækkanir.Ríkisstjórnin skuldar því lífeyrisþegum nú 8% hækkun lífeyris og uppbót fyrir tímabilið 1.mai sl til áramóta.Auk þess skulda stjórnarflokkarnir öldruðum 20% hækkun lífeyris vegna kjaragliðnunar 2009-2013. Ef einhver manndómur hefði verið í ríkisstjórninni hefði hún leiðrétt lífeyri aldraðra og öryrkja strax frá áramótum með því að hækka lífeyrinn um 8% til viðbótar þessum 9,7% og gert upp við lífeyrisþega uppbót fyrir tímabilið 1.mai-31.desember 2015.En ríkisstjórnin ætlar áfram að níðast á lífeyrisþegum og velur þann kost að berja sér á brjóst og tala um að hún hafi unnið mikil afrek í lífeyrismálum aldraðra og öryrkja.Lífeyrisþegar geta ekki látið valta yfir sig endalaust. Björgvin Guðmundsson


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn