Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Samvinnuhugsjónin gleymd og grafin

fimmtudagur, 18. maí 2006

 

Undanfarið hefur ríkisstjórnin lagt fram hvert frumvarpið á fætur öðru um einkavæðingu ríkisfyrirtækja.Hefur Framsókn verið ötul við leggja slík frumvörp fram og virðist svo sem flokkur orðinn kaþólskari en páfinn því er varðar einkavæðingu. Samvinnuhugsjónin er gleymd og grafin.Nú síðast var lagt fram frumvarp um stofnun hlutafélags um rekstur ríkisútvarpsins.Framsókn hefur samþykkt það..Meira segja Þorsteini Pálssyni,fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, of bauð,þegar það mál var lagt fram.Hann sagði,  góð sátt hefði verið í þjóðfélaginu um útvarpið sem ríkisfyrirtæki og ekki ætti rjúfa þá sátt með frumvarpi um breyta útvarpinu í hlutafélag.En það er einmitt það,sem, ríkisstjórnin er gera. Hún er rjúfa  sáttina um ríkisútvarpið.

 

Rafmagn og vatn einkavætt!

 

 Fyrir skömmu lagði ríkisstjórnin (ráðherra Framsóknar) fram frumvarp um stofna hlutafélag um rafmagnsveitur ríkisins.Ekki verður séð hver tilgangurinn er með framlagningu þess frumvarps nema ætlunin selja fyrirtækið síðar.Og ríkisstjórninni væri trúandi til þess. Sporin hræða ( sbr. Síminn).

Náskylt þessum málum er frumvarp til nýrra vatnalaga sem er orðið lögum. Með því frumvarpi var í raun verið einkavæða vatnið,sem hefur verið sameign allar þjóðarinnar.Frumvarpið kvað á um,að vatn væri séreign þeirra landeigenda, sem ættu land það, sem vatn væri finna á og þeir mættu selja vatnið. Samkvæmt eldri lögum höfðu landeigendur aðeins afnotarétt af vatninu. Hér er því um gerbreytingu ræða. Og auðvitað var Framsókn att á foraðið eins og svo oft áður. Stjórnarandstaðan barðist hatrammlega gegneinkavæðinguvatnsins og ætlaði ekki afgreiða málið á yfirstandandi þingi.En málamiðlun náðist lokum milli stjórnar og stjórnarandstöðu um málið yrði afgreitt en tæki ekki gildi fyrr en haustið 2007.

 

Byggðastofnun lömuð

 

Nefna enn eitt átakamálið á yfirstandandi þingi  en það er frumvarp um byggðastofnun og sameiningu hennar við Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og Iðntæknistofnun.( Lagt fram af ráðherra Framsóknar).Margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru andvígir þessu frumvarpi  en af mismunandi ástæðum. Sumir vilja halda í byggðastofnun, þar þeir eru hlynntir stuðningi við landsbyggðina en aðrir  vilja leggja niður allan slíkan stuðning og helst leggja niður byggðastofnun.Í hópi þeirra fyrrnefndu er Einar Oddur,varaformaður fjárlaganefndar en í síðarnefnda hópnum er Sigurður Kristjánsson,formaður menntamálanefndar.

 

Á braska með flugbrautirnar?

 

 Í  munnlegri skýrslu utanríkisráðherra,Geirs H.Haarde,á alþingi gerðust þau tíðindi, ráðherrann lýsti því yfir, hann vildi  stofna hlutafélag um rekstur Keflavíkurflugvallar og einkavæða reksturinn.Menn héldu,að þeim hefði misheyrst. Og meira segja Framsóknarmönnum ofbauð. En þeir verða sennilega ekki lengi renna þessu niður miðað við fyrri reynslu. Þetta eru forkastanlegar ráðagerðir. Það kemur sjálfsögðu ekki til greina,að láta einkaaðila braska með okkar aðal millilandaflugvöll. Áður hefur Sjálfstæðisflokkurinn gælt við það, landhelgisgæslan yrði einkavædd. Það er stórhættulegt, þau fyrirtæki sem eiga annast öryggi landsmanna séu í  höndum einkaaðila. Slík fyrirtæki eiga sjálsögðu vera í höndum ríkisins.

Það virðast engin takmörk fyrir því hvað Sjálfstæðisflokkurinn vill einkavæða.Og Framsókn er alltaf tilbúin.Hún vill öllu fórna fyrir ráðherrastólana.Nú er heilbrigðiskerfið og menntakerfið í hættu.Ef  núverandi ríkisstjórn verður ekki komið  frá völdum í næstu kosningum verður heilbrigðiskerfið og menntakerfið brotið niður. Það verður afstýra því.

 

 

 

Björgvin Guðmundsson

Birt í Morgunblaðinu 18.mai 2006



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn