Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ekkert í fjárlagafrumvarpinu til kjarabóta aldraðra (vegna kosningaloforða)

fimmtudagur, 4. október 2007

 Ég er búinn að fletta fjárlagafrumvarpinu fyrir 2008 og leita að framlögum til kjarabóta aldraðra vegna kosningaloforða stjórnarflokkanna.En þessi framlög finnast ekki. Þrátt fyrir mikil kosningaloforð um miklar kjarabætur til handa öldruðum er ekki ein króna til þess að uppfylla þessi loforð. Það eina sem er að finna í þessu efni í frumvarpinu eru framlög til þess að efna samkomulagið,sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar gerði við Landssamband eldri borgara.Að vísu er unnt að breyta frumvarpinu á þingi en er það ekki heldur mikil hógværð af ráðherrum Samfylkingarinnar að koma ekki inn einni krónu í frumvarpið til þess að bæta kjör aldraðra. Fjárlagafrumvarpið var að vísu samið snemma eftir kosningar. En Samfylkingin kom samt inn í frumvarpið framlögum til barna og ungmenna. Það hefði því eins mátt koma inn framlögum til þess að bæta kjör aldraðra ef vilji hefði verið fyrir hendi.Landssamband eldri borgara sagði í gær, að eldri borgarar hefðu gleymst í eldhúsdagsumræðunum. Eldri borgarar virðast einnig hafa gleymst í fjárlagafrumvarpinu.

 Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn