Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Sjálfstæðisflokkurinn boðar ný höft

fimmtudagur, 12. febrúar 2004

 

Sjálfstæðisflokkurinn herðir nú baráttuna fyrir  setningu laga  gegn "hringamyndun”.Á þingi Verslunarráðs  11.febrúar 2004 gerði forsætisráðherra þetta mál að umtalsefni Sagði hann,að   í ljósi þess,að  nokkrar viðskiptablokkir  hefðu vaxið gríðarlega á undanförnum árum með fulltingi viðskiptabankanna yrði ekki komist hjá því að spyrja, hvort sú  mikla samþjöppun gæti tilefni til þess að löggjafinn lagfærði leikreglurnar. Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins,Einar K.Guðfinnsson, tók undir þetta í viðtali á pressukvöldi sjónvarpsins og hið sama gerði Illugi Gunnarsson,aðstoðarmaður forsætisráðherra í Kastljósi sjónvarpsins.Í viðtali við sjónvarpið kom fram hjá forsætisráðherra, að hann hefði fyrst og fremst áhyggjur af veldi Baugsmanna og yfirráðum þeirra yfir ákveðnum fjölmiðlum.

 

 GAGNRÝNDI VIÐSKIPTABANKANA

 

Í ræðu sinni á viðskiptaþingi sagði forsætisráðherra,að  ekki væri heppilegt,að viðskiptabankar væru í lykilhlutverki í rekstri fyrirtækja. Það  yki hættuna af hagsmunaárekstrum.Bað ráðherrann bankana að íhuga sinn gang vel í þessum efnum. Einnig varaði ráðherra bankana við að taka of mikil erlend skammtímalán. Björgólfur Guðmundsson formaður bankaráðs Landsbankans flutti einnig ræðu á viðskiptaþingi. Hann  líkti viðskiptalífinu við knattspyrnuleik og sagði,að ekki mætti breyta leikreglum í miðjum leik. Var ljóst,að hann var að senda forsætisráðherra skilaboð þess efnis,að ekki gengi að breyta leikreglum viðskiptalífsins í miðjum klíðum.

 

NÝR TÓNN SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS

 

Hatrömm barátta Sjálfstæðisflokksins nú fyrir  nýjum lögum um “ hringamyndanir” markar kaflaskil hjá Sjálfstæðisflokknum. Undanfarin  ár hefur Sjálfstæðisflokkurinn látið sem hann vildi sem mest frelsi í viðskiptalífinu.Allt átti að vera frjálst. Vinstri mönnum hefur þótt nóg um. En nú snýr Sjálfstæðisflokkurinn við blaðinu og vill innleiða ný höft í viðskiptalífinu. Flokkurinn boðar ný lög um samkeppnishömlur eða hringamyndanir eins og flokkurinn kallar það og vill koma í veg fyrir of mikla samþjöppun í viðskiptalífinu. En  erfitt er að snúa klukkunni til baka í þessum efnum. Ísland er aðili að EES og samkvæmt EES samningnum á viðskiptalífið að vera frjálst. Við getum ekki haft meiri hömlur á viðskiptalífinu hér en EES samningurinn segir til um. Þetta gerir forseti Íslands sér ljóst. Hann sagði  í áramótaræðu sinni,að  hætt  væri við að íslensk fyrirtæki flyttu starfsemi sína til útlanda,ef þrengt yrði um of að starfsemi þeirra hér. Gamli Alþýðubandlagsmaðurinn er sem sagt orðinn frjálslyndari í  þessum efnum en Davíð Oddsson. –Sjálfstæðisflokkurinn er hins vegar kominn í gamla haftafarið en flokkurinn   barðist lengi af hörku gegn því að útflutningshöft væru afnumin.

 

HVAÐ VELDUR?

 

 Hvers vegna hefur Sjálfstæðisflokkurinn skyndilega snúið við blaðinu í þessum efnum? Davíð Oddson  svaraði því sjálfur í viðtali við Helga  H. Jónsson í sjónvarpinu. Ástæðan er Baugsveldið.Sjálfstæðisflokkurinn hafði engar áhyggjur meðan “ Kolkrabbinn”  réði nær öllu í viðskiptalífinu.Það virðist ekki sama hverjir eflast í viðskiptalífinu. Það virðist ekki sama hverjir eiga viðskiptasamsteypur. Að sjálfsögðu þarf að vera öflugt eftirlit með fyrirtækjasamtökum og það þarf að efla samkeppnisstofnun og ef nauðsynlegt þykir þarf að herða samkeppnislögin. En stjórnvöld mega ekki  vera hlutdræg í afstöðu sinni til fyrirtækja. Þau mega ekki ofsækja viss  öflug fyrirtæki af þeirri ástæðu einni,að  stjórnendur þeirra eru ekki stjórnvöldum að skapi.

 

Björgvin Guðmundsson

 

" Sjálfstæðisflokkurinn er hins vegar kominn í gamla haftafarið en  flokkurinn barðist lengi af hörku gegn því,að útflutningshöft væru afnumin."

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn