Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Eldri borgarar samþykkja framboð til alþingis

föstudagur, 15. desember 2006

 

 

Á fjölsóttum fundi í Félagi eldri borgara í Rvk  14.desember var samþykkt að  eldri borgarar skyldu hefja undirbúning framboðs til næstu alþingiskosninga. Framboðið verður ekki á vegum félagsins heldur þeirra eldri borgara, sem vilja standa að framboðinu.Verður haldinn fundur sunnudaginn 17.desember að Hótel Borg til þess að ganga  frá kosningu undirbúningsnefndar vegna framboðsins.

 

Óánægja með ríkisstjórnina

 

  Á fundi Félags eldri borgara 14.desember kom fram mikill áhugi á framboði og mikil óánægja með framkomu ríkisstjórnarinnar gagnvart eldri borgurum.Ræðumenn kváðust ákæra ríkisstjórnina vegna slæmra kjara aldraðra og lélegs aðbúnaðar þeirra. Sumir  ræðumanna voru reiðir vegna afstöðu ríkisvaldsins til aldraðra..

 

Fordæmið frá Ísrael

 

Sú skoðun kom fram hjá mörgum, að eina leiðin, sem eldri borgarar gætu farið til þess að fá viðunandi kjarabætur væri  að þeir byðu fram sjálfir og fengju fulltrúa kjörna á alþingi.Í því sambandi hefur verið bent á fordæmið frá Ísrael en þar buðu eldri borgarar fram og fengu mjög góða kosningu. Þeir fengu nokkra þingmenn og sæti í ríkisstjórn. Þeir fengu ráðherra öldrunarmála og úrslitaáhrif.

 

Eru 160-170 þúsund of mikið?

 

Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík samþykkti í nóvember,að lífeyrir aldraðra einstaklinga, sem ekki væru í lífeyrirsjóði þyrfti að hækka í 160-170 þúsund um næstu áramót og ári síðar þyrfti hann að hækka í það, sem neyslukönnun Hagstofunnar segði til um. (meðaltalsútgjöld einstaklinga).Ólafur Ólafsson formaður Landssambands eldri borgara taldi á fundinum 14.desember, að þessar kröfur væru óraunhæfar. 160-170 þúsund á mánuði fyrir skatta væri meira en fengist fyrir eldri borgara. Er Ólafur flutti ræðu sinni og sagði þetta var kallað fram í fyrir honum og sagt,að þetta væri síst of mikið og eldri borgarar gætu  fengið  þetta, ef vilji væri fyrir hendi. Annar ræðumaður saði, að 200 þúsund á mánuði væri lágmark.

 

Meðaltalsútgjöld 210 þúsund  á mánuði

 

Miðað við neyslukönnun Hagstofunnar er 160-170 þúsund  á mánuði  fyrir skatta síst of mikið. Það er of lítið.Meðaltalsútgjöld einstaklinga samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar eru 210 þúsund á mánuði. Það er án skatta. Eldri borgarar  þurfa ekki minna til framfærslu en aðrir sem yngri eru. Þeir þurfa jafnvel meira vegna meiri lyfjakostnaðar og meiri lækniskostnaðar en almenn gerist. Við skulum ekki falla í þann pytt að taka upp rök ríkisstjórnarinnar fyrir því að halda verði lífeyri aldraðra niðri. Það verður að stórhækka lífeyrinn.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn