Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Stjórn R-lista á Reykjavík farsæl. Stjórnin tókst einnig vel 1978-1982. Enginn glundroði.

mánudagur, 15. ágúst 2005

Lengi vel var því haldið fram,að “vinstri flokkarnir” í Reykjavík gætu ekki stjórnað borginni,þar eð þeir gætu aldrei komið sér saman.Sjálfstæðismenn og Morgunblaðið hömruðu stanslaust á þessu og flestir borgarbúar trúðu því. Þetta var nefnt glundroðakenningin. En svo varð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og leiddi R-listann til sigurs í þrennum kosningum. Þá var glundroðakenningin afsönnuð. Andstöðuflokkar Sjálfstæðisflokksins  í Reykjavík gátu unnið vel saman undir styrkri stjórn Ingibjargar Sólrúnar. Það ríkti enginn glundroði. Borgarbúar hættu að trúa glundroðakenningunni. Þeir kusu R-listann og Ingibjörgu Sólrúnu aftur og aftur. Það hefðu þeir ekki gert,ef þeir hefðu talið  einhvern glundroða ríkja.  

Rykið dustað af gamalli kenningu

  Nú hefur rykið verið dustað af glundroðakenningunni,þar eð það hefur tekið nokkuð langan tíma að semja um skipan frambjóðenda á R-listann.Morgunblaðið segir,að  “glundroðinn” innan R-listans minni á glundroðann 1978-1982,þegar “vinstri flokkarnir” fóru með völd í Reykjavík. Ekki er talað um glundroða  á stjórnartíma R-listans enda enginn glundroði verið heldur styrk stjórn. Þess vegna hentar ekki að tala um tímabil R-listans heldur farið allt aftur til 1978 í samanburðinum og gamall áróður dreginn fram.Treyst er á,að menn muni ekki það tímabil.

Gott samstarf 1978-1982 

En hver er sannleikurinn um tímabilið 1978-1982 í stjórn borgarinnar: Hann er þessi.Alþýðuflokkur,Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag mynduðu meirihluta eftir að Sjálfstæðisflokkurinn missti völdin 1978.Að tillögu Alþýðuflokksins var ákveðið að stjórn borgarinnar byggðist á jafnræði milli flokkanna og til þess að innsigla það  hafði hver flokkur 1 fulltrúa í borgarráði,þar sem mest völd lágu ( og liggja enn í dag). Allir flokkar höfðu jafnmarga fulltrúa í nefndum. Formennsku  nefnda var skipt jafnt á milli flokkanna. Formennska í borgarráði  skiptist milli flokkanna.( Roteraði). Ákveðið var að ráða ópólitískan embættismann sem borgarstjóra eins og gert hafði verið í mörgum sveitarfélögum úti á land með góðum árangri.Þetta samstarf og þetta kerfi gekk mjög vel. Enginn ágreiningur var um borgarmálefni allt kjörtímabilið. Eina ágreiningsefnið,sem kom upp var um mál,sem ekki varðaði stjórn borgarinnar,heldur snerti Landsvirkjun og Laxárvirkjun. Samstarf oddvita meirihlutaflokkanna gekk mjög vel.Ekkert vandamál kom upp í þeirra samstarfi.Áróður um að oddvitarnir hafi verið eins konar borgarstjórar er tilbúningur Sjálfstæðismanna. Það mætti alveg eins kalla borgarráðsmenn hverju sinni því nafni,bæði nú og í tíð Sjálfstæðisflokksins. 

Eins og bæjarstjórar úti á landi

Borgarstjórinn hafði alveg sömu völd og bæjarstjórar hafa úti á landi,þ.e. embættismenn ,sem ráðnir hafa verið sem framkvæmdastjórar sveitarfélaga.( sbr. einnig Þórólfur Árnason,sem ráðinn var framkvæmdastjóri borgarinnar).Borgarráð annaðist ásamt borgarstjórn stefnumörkun  og tók ákvörðun um stærstu mál en borgarstjóri hafði frjálsar hendur um framkvæmd og útfærslu mála.Allt tal Sjálfstæðismanna um annað er áróður einn sem nú hentar að draga fram á ný þar eð dregist hefur að koma R-listanum saman. 

Ekki allt í sómanum hjá íhaldinu 

Vissulega þykir stuðningsmönnum R-listans það slæmt að dragast skuli að koma listanum saman.En með því að um kosningabandalag þriggja flokka er að ræða þarf það ekki að vera óeðlilegt.Mikil átök eru innan Sjálfstæðisflokksins enda þótt þar sé um einn flokk að ræða. Deilt er um hver leiða eigi listann og eru komnir fram á sjónarsviðið  sjálfskipaðir prinsar sem vilja velta Vilhjálmi Þ.Vilhjálmssyni  úr sessi. Má þar t.d. nefna Gísla Martein,sem lét gera skoðanakönnun til þess að sýna,að hann hefði meira fylgi en Vilhjálmur. Menn minnast átakanna innan Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu  kosningar,þegar Björn Bjarnason og Inga Jóna Þórðardóttir deildu um leiðtogasætið. Þá velti Björn Ingu Jónu úr sessi og lét flokksforustuna þvingja hana til þess að  segja af sér. Ekki verður eins auðvelt að ryðja Vilhjálmi burt og má því búast við mun harðari átökum nú innan Sjálfstæðisflokksins en áður. Spá mín er sú,að glundroðinn verði mun meiri innan Sjálfstæðisflokksins en innan R-listans.

Björgvin Guðmundsson

fyrrv. borgarfulltrúi



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn