Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Kosningaloforðin við aldraða og öryrkja fallin í gjalddaga

miðvikudagur, 24. júní 2015

Á flokksþingi Framsóknarflokksins fyrir þingkosningar 2013 var eftirfarandi samþykkt: Lífeyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður vegna kjaraskerðingar þeirra á krepputímanum ((kjaragliðnunar).Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar 2013 var þetta samþykkt: Ellilífeyrir sé leiðréttur STRAX til samanburðar við þær hækkanir, sem orðið hafa á lægstu launum síðan í ársbyrjun 2009.Þessi kosningaloforð eru alveg skýr.Því var lofað skýrt og ákveðið, að kjaragliðnun krepputímans yrði leiðrétt.Þessi loforð voru endurtekin í kosningabaráttunni. Hvernig stendur á því, að í dag,rúmum tveimur árum frá því þessi kosningaloforð voru gefin, er ekki farið að efna þau? Engu er líkara en, að ríkisstjórnin ætli að svíkja þessi kosningaloforð stjórnarflokkanna,Ríkisstjórnin minnist aldrei á þessi loforð.Ekkert bendir því til þess, að ríkisstjórnin ætli að efna loforðin. Komu loforðin stjórninni til valda? Ef til vill hafa kosningaloforðin við aldraða og öryrkja átt stóran þátt í því, að stjórnarflokkarnir komust til valda.Það er a.m.k öruggt, að þessi stóru loforð færðu stjórnarflokkunum mjög mörg atkvæði.Ríkisstjórnin á því aðeins tvo kosti í dag : Að efna kosningaloforðin eða fara frá völdum.-Væntanlega velur ríkisstjórnin fyrri kostinn og efnir kosningaloforðin.En það verður að gerast strax.Það þarf að koma fram frumvarp strax um leiðréttingu á kjaragliðnun krepputímans.Komi ríkisstjórnin ekki með slíkt frumvarp er hún umboðslaus og á að fara frá. Það þýðir ekkert fyrir ríkisstjórnina að svara því, að það sé verið að endurskoða lög um almannatryggingar og þegar henni ljúki komi leiðréttingar.Það er allt annar hlutur.Þar er um að ræða kerfisbreytingu til framtíðar.En kjaragliðnunin er kjaraskerðing á liðnum tíma, sem þarf að byrja á að leiðrétta og þolir ekki bið.Það þýðir heldur ekkert fyrir ríkisstjórnina að skjóta sér á bak við þetta lítilræði, sem samþykkt var fyrir aldraða og öryrkja à sumarþinginu 2013. Eftir stendur, að ríkisstjórnin hefur ekkert gert í því að leiðrétta kjaragliðnun krepputímans.Þá leiðréttingu verður að framkvæma strax með því að hækka lífeyri um 20%.Siðan þarf að koma til viðbótar hækkun á lífeyri til samræmis við hækkun á launum verkafólks upp í 300 þúsund á mánuði. Er ríkisstjórnin andvíg eldri borgurum? Ef ríkisstjórnin ætlar bæði að leggjast gegn því að hækka lífeyri til samræmis við hækkun lægstu launa og svíkja loforðið um að leiðrétta kjaragliðnun krepputímans, er hún greinilega andvíg eldri borgurum og öryrkjum.Fjármálaráðherrann hefur lýst andstöðu sinni við kjarabætur til handa öldruðum og öryrkjum.Hugur hans til lífeyrisþega er ljós.Hver er afstaða annarra ráðherra? Það hefur engin ríkisstjórn lofað eldri borgurum og öryrkjum eins miklum kjarabótum og sú ríkisstjórn, sem nú situr. En ef þessi kosningaloforð verða svikin eru það einnig stærstu svik ríkisstjórnar við lífeyrisþega. Björgvin Guðmundsson Birt í Fréttablaðinu 24.júní 2015 --------------------------------------------------------------------------------


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn