Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Búið að stórskemma íslenska velferðarkerfið

fimmtudagur, 15. desember 2005

 

 

Nýlega ritaði ég blaðagrein um málefni eldri borgara og skýrði frá því,að Ísland væri mörgum áratugum á eftir hinum Norðurlöndunum  að því er varðaði aðbúnað og kjör eldri borgara.Vitnaði ég í því sambandi í athuganir,sem samtök eldri borgara hafa gert á málinu.Fyrir skömmu kom út skýrsla frá Stefáni Ólafssyni prófessor um stöðu öryrkja hér á landi í alþjóðlegu samhengi.Sú skýrsla leiddi í ljós,að öryrkjar hér á landi standa langt að baki öryrkjum á hinum Norðurlöndunum og  í flestum löndum OECD að því er varðar  greiðslu lífeyris og framfærslueyris til öryrkja. Á sviði þessara mála er Ísland á bekk með þeim löndum Evópu sem eru á botninum að því er varðar kjör öryrkja,þ.e. með Tyrklandi og Miðjarðarhafslöndum!

 

Alþýðuflokkurinn kom tryggingunum á

 

 Alþýðuflokkurinn kom alþýðutryggingum á 1936 og almannatryggingum 1946.Eftir lögfestingu almannatrygginganna,sem fólu í sér miklar umbætur á íslenska tryggingakerfinu,var Ísland í fremstu röð á þessu sviði í heiminum. En svo er ekki í dag. Ísland getur ekki eins og áður státað af því að vera með eitt besta kerfi almannatrygginga í heiminum. Það er búið að stórskemma almannatryggingarnar á Íslandi í tíð núverandi ríkisstjórnar og í valdatíð þeirra stjórnarflokka,sem standa að ríkisstjórninni.Alls konar tekjutengingar skerða bætur mikið.En mestu veldur  sú ráðstöfun stjórnvalda 1995,að skera á sjálfvirk tengsl milli lífeyris aldraðra og öryrkja og lágmarkslauna launþega á almennum vinnumarkaði. Fram að þeim tíma hækkaði lífeyrir umræddra hópa  sjálfvirkt,þegar lágmarkslaun hækkuðu.Skorið var á þessi tengsl. En um leið lýsti þáverandi forsætisráðherra því yfir,að  þessi breyting mundi ekki skerða kjör aldraðra og öryrkja.Trygging aldraðra og öryrkja yrði tvöföld:Miðað yrði bæði við hækkun launa og verðlags,þegar lífeyrir umræddra hópa yrði ákveðinn. Þetta var svikið. Eins og samtök aldraðra hafa bent á hefur lífeyrir aldraðra (og öryrkja) dregist mikið aftur úr í launaþróuninni sl. 11 ár.

 

40 milljarðar hafðir af öldruðum

 

Ég hefi bent á það í blaðagreinum,að ef sjálfvirku tengslin hefðu haldist eða  ef stjórnvöld hefðu staðið við fyrirheitið um að skerða ekki kjör aldraðra í kjölfar breytingarinnar 1995 þá hefðu aldraðir fengið 40 milljörðum kr. meira í lífeyri  sl. 11 ár en þeir hafa fengið. Stjórnvöld hafa því haft af öldruðum 40 milljarða sl. 11 ár. Ríkisstjórnin skuldar því öldruðum mikla fjármuni. Aldraðir hefðu átt að fá meginhlutann af Símapeningunum en .þeir fengu ekki eina krónu. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að bæta öldruðum þennan skaða? Í því efni duga engir smáaurar. Það dugar ekki að sletta í aldraða nokkrum krónum eins og gert var með samkomulaginu við þá í nóvember 2002.Það verður að rétta hag aldraðra myndarlega.Landssamband eldri borgara vill,að lífeyrir aldraðra frá Tryggingastofnun verði hækkaður um 17 þús kr. á mánuði. Það er algert lágmark. Í raun þyrfti að hækka hann mikið meira vegna  mikillar skerðingar liðins tíma.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Fréttablaðinu 21.des. 2005



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn