Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Hvers vegna hækkar ekki lífeyrir eldri borgara?

föstudagur, 25. janúar 2008

 
 
 
Hvers vegna hækkar ríkisstjórnin ekki lífeyri aldraðra frá almannatryggingum eins og lofað var fyrir kosningar? Hvers vegna segir ríkisstjórnin, að hún sé að bæta kjör aldraðra, þegar hún er eingöngu að draga úr tekjutengingum,sem aðeins koma hluta eldri borgara til góða? Ellilífeyrisaldur er 67 ára. Þegar fólk hefur náð  þeim aldri getur það farið á eftirlaun. Það hefur þá lokið starfsævi sinni. Þeir eru tiltölulega fáir,sem vilja halda áfram að vinna.Aðgerðir ríkisstjórnar til þess að bæta kjör aldraðra eiga að sjálfsögðu að miðast við þá, sem eru orðnir ellilífeyrisþegar og hættir störfum. Aðgerðirnar eiga ekki eingöngu eða fyrst og fremst að miðast við þá sem eru heilsuhraustir og kjósa að vinna áfram. Það er mikill minnihluti  aldraðra Og það á ekki að blekkja eldri borgara og tala eins og það sé verið að bæta  kjör allra eldri borgara, þegar aðeins er verið að bæta kjör þeirra, sem eru á vinnumarkaðnum.
 
Lífeyrir ekki hækkaður um eina krónu
 
Það eru nú 8 mánuðir frá því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar tók við völdum en samt hefur lífeyrir aldraðra, sem hættir eru að vinna, enn ekki hækkað um eina krónu fyrir tilstuðlan ríkisstjórnarinnar.
Félag eldri borgara í Reykjavík hefur samþykkt að lífeyrir eldri borgara verði miðaður við neysluútgjöld samkvæmt könnun Hagstofu Íslands.  
Hagstofan birti á  slíka könnun 18.desember 2007. Þá voru neysluútgjöld einhleypinga komin í 226 þúsund krónur  á mánuði,  að viðbættri vísitöluhækkun  frá því könnunin var gerð.Skattar eru ekki meðtaldir í könnun Hagstofunnar .60+ hjá Samfylkigunni hefur  gert svipaða ályktun og Félag  eldri borgara í Reykjavík, þ.e. að miða  eigi  lífeyri aldraðra við neyslukönnun Hagstofunnar.
 
Það vantar   110 þúsund á mánuði
 
Lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum er í dag 130 þúsund krónur á mánuði hjá einhleypingum, sem ekki eru í lífeyrissjóði, þ.e. fyrir skatta eða 118 þúsund eftir skatta.Það vantar því 108 þúsund á mánuði upp á að     lífeyririnn dugi fyrir neysluútgjöldum.Tilkynning  ríkisstjórnarinnar um að hún ætli að láta þá, sem ekki eru í lífeyrissjóði, fá  25 þúsund á mánuði úr lífeyrissjóði frá 1.júlí n.k. hrekkur skammt til þess að brúa þetta bil.Mjög lítill hópur fær þessa  upphæð og hún verður skattlögð og veldur skerðingu tryggingabóta eins og allar  tekjur úr lífeyrissjóði. Hjá einhleypingi  verða ekki nema  rúmlega 8 þúsund krónur eftir á mánuði þegar búið er að skerða þessa upphæð með sköttum og skerðingu bóta.Þetta útspil ríkisstjórnarinnar er því aðeins til málamynda.
 
Kosningaloforðin voru skýr
 
Samfylkingin lofaði því fyrir síðustu kosningar að hún ætlaði að leiðrétta lífeyri aldraðra og miða hann við neysluútgjöld samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar. Sú leiðrétting yrði gerð í áföngum.Fyrsti áfangi  þessarar leiðréttingar hefur ekki tekið gildi enn.Það er ekki nóg að draga úr tekjutengingum til þess að efna þetta loforð.Kjarabætur til aldraðra verða að ná til allra ellilífeyrisþega en ekki eingöngu þeirra,sem eru á vinnumarkaði.Það á ekki að mismuna eldri borgurum.Sjálfstæðisflokkurinn  hét eldri borgurum einnig kjarabótum fyrir síðustu kosningar.Ég tel því að ríkisstjórnin sé skuldbundin til þess að bæta kjör  eldri borgara myndarlega með hækkun lífeyris allra en ekki hluta eldri borgara.
 
Björgvin Guðmundsson
 
Birt í Fréttblaðinu   24.jan. 2008


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn