Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Gereyðingarvopn:Óháð rannsókn í USA og í Bretlandi.Þarf ekki slíka rannsókn á Íslandi?

mánudagur, 2. febrúar 2004

 

 

Þær fréttir berast nú frá Bandaríkjunum,að Bush forseti muni í vikunni fyrirskipa,að fram fari óháð rannsókn í Bandaríkjunum á villandi upplýsingum leyniþjónustu Bandaríkjanna um gereyðingarvopn í Írak. Svo háværar raddir eru nú um það í Bandaríkjunum,að slík rannsókn fari fram,að Bush kemst ekki hjá því að samþykkja hana.

 

 EINNIG Í BRETLANDI ?

 

Breski íhaldsflokkurinn hyggst  leggja fram í breska þinginu tillögu um,að sams konar óháð rannsókn fari fram í Bretlandi. Er talið líklegt,að Blair samþykki hana. Bresk rannsókn ætti einnig að rannsaka upplýsingar bresku leyniþjónustunnar um gereyðingarvopn í Írak. En bæði löndin,Bandaríkin og Bretland, byggðu á upplýsingum frá leyniþjónustum sínum,þegar ákvörðun var tekin um innrás í Írak.

 

ÞARF EKKI RANNSÓKN Á ÍSLANDI?

 

En hvað með Ísland? Þarf ekki einnig að fara fram óháð rannsókn á Íslandi um það hvers vegna Ísland studdi innrás í Írak? Hvaða upplýsingar lágu fyrir,þegar Ísland tók ákvörðun? Var ákvörðunin tekin á löglegan hátt? Var málið rætt í utanríkismálanefnd og á alþingi?. Þetta þarf að rannsaka. Og valdhafar Íslands geta ekki  skotið sér á bak við önnur ríki í þessu máli. Þeir bera sjálfir ábyrgð á þeirri ákvörðun, sem tekin var hér. Þeir þurfa að gera grein fyrir þeim upplýsingum,sem þeir höfðu undir höndum.Krafa Íslendinga er: Fram fari einnig hér á landi óháð rannsókn á þessu máli.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn