Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Verið að brjóta stjórnarskrána á öldruðum og öryrkjum!

þriðjudagur, 28. júlí 2015

Hagstofan hefur birt rannsókn um það hverja skorti efnisleg gæði.Samkvæmt rannsókninni skortir hóp öryrkja og aldraðra efnisleg gæði og hefur þessi hópur stækkað frá árinu 2013 til 2014.Með skorti á efnislegum gæðum er m.a átt við eftirfarandi: Hefur ekki efni á að fara í vikulegt frí með fjölskyldunni, hefur ekki efni á kjöti,fiski eða sambærilegri grænmetismáltíð, a.m.k annan hvern dag, hefur ekki efni á heimasíma,farsíma eða sjónvarpi, hefur ekki efni á þvottavél, hefur ekki efni á bíl og ekki heldur á tövubúnaði, hefur ekki efni á að kynda íbúðina nógu vel og hefur lent í vanskilum með húsnæðislán eða önnur lán vegna fjárskorts.Ef um skort á a.mk þremur framangreindum atriðum er að ræða, telst vera skortur á efnislegum gæðum. Ríkið skammtar nauman lífeyri Þessi rannsókn er mjög athyglisverð. Hún staðfestir það, sem áður hefur verið vitað, að margir aldraðir og öryrkjar geta ekki lifað eðlilegu lífi vegna þess, að ríkið skammtar þeim svo nauman lífeyri, að þeir geta ekki framfleytt sér að fullu.Samkvæmt þessu er ljóst, að ríkið er að brjóta stjôrnarskrána með þessu framferði gegn lífeyrisþegum.Réttur aldraðra og öryrkja til þess að lifa eðlilegu lífi er stjórnarskrárvarinn.Þegar stjórnvöld eru að skera mikið niður greiðslur til aldraðra og öryrkja eins og nú, eru þau að brjóta stjórnarskrána. Láta lífeyrisþega fá þriðjung af hækkun launþega Ríkisstjórnin ætlar nú að láta lífeyrisþega fá þriðjung af þeirri hækkun, sem launþegar fá á nýju samningstímabili.Það er hoggið í sama knérunn og áður. Í stað þess að láta lífeyrisþega fá meira en launþegar fá til þess að leiðrétta lífeyrinn vel er skorið niður til lífeyrisþega eins og áður.Lífeyrir einhleypra lífeyrisþega, sem einungis hafa tekjur fra TR, er í dag 225 þúsund krónur fyrir skatt,192 þúsund eftir skatt. Eins hár og húsnæðiskostnaður er í dag er engin leið að lifa eðlilegu,mannsæmandi lífi af þessari hungurlús.Algeng húsaleiga í dag er 150 þúsund krónur á mánuði.Og þó hún sé 10 þúsund krónum lægri í vissum tilvikum sjá allir, að engin leið er að lifa eðlilegu lífi af því,sem eftir er af lífeyrinum.Þeir, sem eiga sitt húsnæði, þurfa að greiða eitthvað minna í húsnæðiskostnað..En útgjöld eru samt mikil í afborganir og vexti lána,fasteignagjöld,rafmagn og hita,hússjóð o.fl. Flestir úr þessum hópi öryrkja og aldraða flokkast undir þá, sem skortir efnisleg gæði. Lífeyrisþegar fái það sama og launþegar Rïkisstjórnin hefur nú tækifæri til þess að laga ástandið hjá lífeyrisþegum og hætta að brjóta á þeim stjórnarskrárvarinn rétt. Hún getur látið lífeyrisþega fá sömu hækkun og láglaunafólk fèkk sl vor, þ.e. 31þúsund króna hækkun á mánuði frá 1.mai. Lágmarkstrygging hækkaði þá um 31 þúsund á mánuði. 28 % hækkun verður á 3 árum.Lífeyrir á að hækka í 300 þúsund á mánuði á þessum tíma eins og lágmarkslaun. Björgvin Guðmundsson Formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni´ Birt í Fréttablaðinu 29.júlí 2015


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn