Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Leiðtogarnir sviku lífeyrisþega

fimmtudagur, 14. janúar 2016

Hvaða leyfi hafa stjórnarherrarnir,Sigmundur Davíð og Bjarni, til þess að halda kjörum lífeyrisþega niðri? Fengu þeir eitthvað umboð til þess í síðustu kosningum að hlunnfara aldraða og öryrkja á sama tíma og allir aðrir í þjóðfêlaginu fá miklar kjarabætur.Var það ekki þveröfugt? Sögðust þeir ekki ætla að stórbæta kjör lífeyrisþega? Ég man ekki betur. Þessir leiðtogar eru því að svíkja aldraða og öryrkja.? Lofaði að afnema allar tekjutengingar Bjarni Benediktsson skrifaði eldri borgurum bréf fyrir síðustu alþingiskosningar og lofaði, að hann mundi afnema allar tekjutengingar í kerfi almannatrygginga. Það þýddi , að hann ætlaði að hætta að skerða tryggingabætur TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.Það hefði verið mikil kjarabót,ef hann hefði staðið við það.En Bjarni sveik loforðið! Bjarni lofaði einnig í umræddu bréfi til eldri borgara að hætta að skerða tryggingabætur hjá TR vegna fjármagnstekna (m.a. af innistæðum í bönkum). Það er einnig mikið hagsmunamál eldri borgara. En hann sveik það loforð líka. Bjarni Benediktsson lofaði einnig að afnema alla skerðingu tryggingabóta vegna atvinnutekna.Hann ætlaði ekki aðeins að rýmka frítekjumarkið. Nei hann lofaði að gefa ótakmarkaða heimild fyrir atvinnutekjum án þess að þær skertu tryggingabætur. En hann sveik þetta kosningaloforð líka! Lofað að leiðrétta kjaragliðnunina Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2013 var eftirfarandi samþykkt: Ellilífeyrir verði leiðréttur strax til samanburðar við þær hækkanir,sem orðið hafa á lægstu launum frá 2009.Þarna er engin tæpitunga töluð. Því er lofað að ellilífeyrir verði leiðréttur vegna launahækkana, ekki seinna heldur strax. En núna 2 1/2 ári seinna er ekkert farið að gera í að efna þetta loforð.Bjarni Benediktsson var formaður Sjálfstæðisflokksins, þegar þetta var samþykkt 2013 og hann er formaður flokksins ennþá. Hann ber því fulla ábyrgð á þessu loforði og efndum þess.M.ö.o. Bjarni lofaði að hækka lífeyri aldraðra til samræmis við þær hækkanir,sem orðið hefðu á lægstu launum 2009-2013. En hann hefur ekki aðeins svikið það heldur einnig bætt um betur og haldið kjörum aldraðra og öryrkja niðri á yfirstandandi ári (2015), þegar allar aðrar stéttir hafa fengið miklar launahækkanir á þessu ári.(2015).Framsókn lofaði einnig að leiðrétta kjaragliðnunina. Lét kennara fá 44% hækkun og lækna 40%! Bjarni lét sem fjármálaráðherra framhaldsskólakennara fá 44% launahækkun!,Hann lét lækna fá 40 % kauphækkun og þannig mætti áfram telja.Ríkið ruddi brautina fyrir gífurlegum launahækkunum. En þegar kom að öldruðum og öryrkjum sagði Bjarni nei.En þó voru það einmitt lífeyrisþegar,sem Bjarni og raunar Sigmundur einnig lofuðu að bæta kjörin mest hjá i þingkosningunum 2013. Verkafólk fékk 14,5% hækkun lágmarkslauna 1.mai 2015 og ráðherrarnir sjálfir fengu mikla launahækkun frá 1.mars 2015.( Yfir 100 þúsund kr á mánuði).En þeir Bjarni og Sigmundur Davíð ákváðu,að aldraðir og öryrkjar skyldu ekki fá neina hækkun í 8 mánuði eftir almennar launahækkanir vorsins 2015.Þeir skyldu fyrst fá hækkun 2016 og þá miklu minni hækkun en launþegar eða 9,7% hækkun í stað 14,5%.Með þessari ákvörðun var verið að stórskerða kjör lífeyrisþega og í rauninni að framkvæma nýja kjaragliðnun.Þannig sviku leiðtogarnir aldraða og öryrkja. Björgvin Guðmundsson Formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Rvk og nágrennni


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn