Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Engin þörf á því að selja Símann

þriðjudagur, 28. september 2004

 

 

Nú er það aðalbaráttumál ríkisstjórnarinnar að selja Símann en ríkið á mest allt hlutaféð í því fyrirtæki.Eins og menn muna var Síminn ríkisfyrirtæki  en síðan var fyrirtækinu breytt í hlutafélag.Átti ríkið þá allt hlutaféð en þegar misheppnuð tilraun var gerð til þess að selja Símann einkaaðilum eignuðust einstaklingar lítilsháttar af hlutafé.

 

 Hvers vegna þarf að selja?

 

Hvers vegna þarf að selja Símann? Þarf ríkið að losa sig við taprekstur vegna þess að fyrirtækið sé illa rekið?Nei Síminn er vel rekið fyrirtæki sem skilar miklum gróða. Svo var einnig þegar Síminn var hreint ríkisfyrirtæki og því hafði ekki verið breytt í hlutafélag. Það hafa því aldrei verið nein rök fyrir því að selja Símann til einkaaðila.Rök einkarekstursmanna um að einkafyrirtæki séu betur rekin en ríkisfyrirtæki eiga ekki við um Símann. Hér er dæmi um fyrirmyndar ríkisfyrirtæki sem er og hefur verið mjög vel rekið. Það eru engin rök fyrir því að selja Símann til einkaaðila og best er fyrir ríkið að eiga fyrirtækið áfram. Á þann hátt getur það einnig tryggt allri landsbyggðinni góða  þjónustu og eflt dreifikerfi  Símans út um allt land.

 

  Ekki skilyrði frá ESB

 

Aðalatriðið í sambandi við Símann er að það starfi á sama grundvelli og önnur fyrirtæki í þessari grein,þ.e. njóti engra forréttinda þó ríkið eigi mestallt hlutaféð. Ef Síminn sem hlutafélag nýtur engra forréttinda frá ríkinu og verður að keppa á heilbrigðum samkeppnisgrundvelli við önnur fjarskiptafyrirtæki eins og Og Vodafone þá skiptir engu máli hvort ríkið á meiri hluta hlutafjár eða einhverjir einkaaðilar.Það er ekkert skilyrði frá ESB ,að  ríkið eigi ekki hlutafé í slíku fyrirtæki.. Það er hins vegar meiri hætta á því,að einkaaðilar svíkist um að  veita landsbyggðinni næga þjónustu og það er meiri hætta á því að einkaaðilar í þessari grein stofni til verðsamráðs og reyni að halda verðinu uppi  á þjónustunni, ef ríkið er alveg komið út úr greininni.

 

 Aðild Símans að Skjá 1

 

Fyrir skömmu keypti Síminn fjórðung í Skjá 1.Er talið,að með þeirri ráðstöfun hafi Síminn viljað komast inní sjónvarpsrekstur. Fjárhagsstaða Skjás 1 mun hafa verið mjög slæm. Þessi ráðstöfun Símans gagnast því báðum aðilum: Hún bætir fjárhag Skás 1 og veitir Símanum aðild að sjónvarpsrekstri. Sumir hafa gagnrýnt það,að “ríkisfyrirtæki” væri að kaupa stóran hlut í einkasjónvarpsstöð.En ég sé ekkert athugavert við það. Síminn er hlutafélag og keppir á samkeppnisgrundvelli. Norðursljós svöruðu með því að kaupa 35% í Og Vodafone. Þar með eru Norðurljós komin inn í stórt fjarskiptafyrirtæki. Áður voru Norðurljós í viðræðum við Símann um samstarf en þær viðræður fóru út um þúfur.Ljóst er,að samkeppni milli þessara tveggja risa á fjarskipta  og fjölmiðlamarkaði verður mjög hörð.

 

 Samkeppni er trygg

 

Samkeppnin er trygg á  fjarskipta og fjölmiðlamarkaði. Það er því engin þörf á einkavæðingu Símans til þess að tryggja hana.Með fyrri  reynslu í huga má telja víst,að stjórnvöld mundu ekki standast þá freistingu að hafa áhrif á það hver fengi að kaupa Símann. Ef stjórnvöld ætla að afhenda Símann einhverjum gæðingum svo þeir geti braskað með fyrirtækið er verr af stað farið en heima setið. Það er best að hafa Símann  óbreyttan í því formi,sem hann er í nú,þe. hlutafélag að mestu í eigu ríkisins.

 

Björgvin Guðmundsson

Birt í Fréttablaðinu  28.sept. 2004



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn