Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Um hvað er deilt í íslenskum stjórnmálum?

fimmtudagur, 27. september 2007

 

 

 Um hvað er deilt í íslenskum stjórnmálum í dag? Það er ekki á auðvelt að svara þeirri spurningu.Ungt fólk,sem er að kjósa í fyrsta sinn á  í erfiðleikum með að átta sig á mun flokkanna. Munurinn hefur  minnkað og stundum finnst mönnum munurinn  á flokkunum vera sáralítill.

 

Deilt um stóriðju

 

Í dag er helst deilt um stóriðju og umhverfismál.Það mál var eitt helsta deilumálið í síðustu kosningum. Vinstri græn börðust þá gegn stóriðju  og vildu stöðva stóriðjuframkvæmdir með öllu. Samfylkingin vildi  stöðva stóriðjuframkvæmdir í 5 ár á meðan athugað væri hvað þyrfti að vernda í nátturu landsins og hvar væri óhætt að virkja síðar.Sjálfstæðisflokkurinn vildi óbreytta stefnu í stóriðjumálum. Framsókn sló  úr og i. Annað mál,sem mikið var rætt um  fyrir þingkosningarnar, var velferðin,velferðarmálin og kjör aldraðra og öryrkja. Allir flokkar sögðust vilja bæta kjör  aldraðra og öryrkja,þar á meðal frjálslyndir en Samfylkingin setti fram róttækustu stefnumálin í velferðarmálum.

 

Kvótamálinu sópað undir teppið

 

Ekkert   var rætt  í þingkosningunum um stærsta mál þjóðarinnar, kvótamálið. Því var sópað undir teppið.Samfylkingin er með góða stefnu í auðlindamálum  og kjarni hennar er sá,að gjald eigi að koma fyrir afnot allra auðlinda, þar á meðal auðlinda sjávar. Hinir flokkarnir hafa mjög  óljósa stefnu í auðlindamálum.

 Lítið er rætt um grundvallaratriði eins og eignarhald atvinnutækjanna.Ástæðan er sú, að “vinstri” flokkarnir virðast hafa látið af andstöðu við einkarekstur.Allir flokkar virðast því  í dag hallast að því,að einkarekstur sé heppilegasta rekstrarformið. Áður var þetta eitt helsta ágreiningsmál flokkanna.Helst eru

 það Vinstri græn eða einstakir þingmenn þar sem enn vilja opinberan rekstur að einhverju leyti,a.m.k.Ég  tel,að alltof langt hafi verið gengið á braut einkavæðingar. T.d. tel ég,að  halda  hefði átt einum af ríkisbönkunum i eign ríkisins til þess að tryggja nægilega þjónustu við landsbyggðina.Ég er andvígur einkavæðingu orkjufyrirtækja.Hlutafélagavæðing Orkuveitunnar slær mig illa og gæti verið fyrsta skrefið í einavæðingu fyrirtækisins.

 

Skattar einstaklinga hafa hækkað

 

Í stað ágreinings  um rekstrarform fyrirtækjanna eru nú komnar deilur  um skattamál og velferðarmál.

Talsverðar deilur hafa verið um skattamálin undanfarin ár. Fyrri ríkisstjórn hafði þá stefnu að létta skattbyrði fyrirtækjanna en auka skatta á almenningi.Skattar á fyrirtækjum voru lækkaðir í 18% en skattar á einstaklingum ( almenningi ) eru yfir 35%. Fjármagnstekjuskattur er aðeins 10%.Skattleysismörkin  hafa ekki fylgt launum eða verðlagi .Ef svo hefði verið frá 1988 væru skattleysismörkin yfir 140 þúsund í dag en eru aðeins  90 þúsund á mánuði.Af þessum sökum hafa skattar einstaklinga þyngst mikið. Í stjórnarsáttmála nýju stjórnarinnar segir,að lækka eigi skatta einstaklinga á kjörtímabilinu. Væntanlega verður staðið við það.

Nauðsynlegt er að endurskoða allt kerfi almannatrygginga með   það að markmiði að einfalda  kerfið og afnema að mestu allar skerðingar og tekjutengingar.Stórhækka þarf lífeyri aldraðra og öryrkja þannig að hann dugi til framfærslu í samræmi við neyslukönnun Hagstofu Íslands um meðaltals útgjöld einstaklinga til neyslu.

 

 

Björgvin Guðmundsson

Birt í Fréttablaðinu 27.september 2007

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn