Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ákvörðun um stuðning Íslands við Íraksstríð var ólögleg

laugardagur, 8. maí 2004

 

 

Össur Skarphéðinsson,formaður Samfylkingarinnar,hefur skýrt frá því,að hann ætli að leggja til á Alþingi,að  rannsakað verði hvernig ákvörðun um stuðning Íslands við árás á Írak var tekin. Hefur hann sagt,að annað hvort megi skipa sérstaka rannsóknarnefnd í þessu skyni á Alþingi eða láta utanríkismálanefnd rannsaka málið. Samfylkingin leitar samstöðu  með öðrum stjórnarandstöðuflokkum um málið.

 

 Ákvörðun tekin utan stjórnar

 

Það hefur komið fram áður,að mál þetta var hvorki lagt fyrir utanríkismálanefnd né  Alþingi. En  svo virðist sem málið hafi heldur ekki verið afgreitt í ríkisstjórn. En hvar var það þá afgreitt? Svar: Ákvörðun mun hafa verið tekin utan ríkisstjórnarinnar í tveggja manna tali forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Slík ákvörðun í þessu mikilvæga máli er kolólögleg.Það eru  skýr ákvæði um það,  að öll mikilvæg utanríkismál á að leggja fyrir utanríkismálanefnd. Og með því,að  hér var um algera stefnubreytingu  að ræða í  utanríkismálum átti að leggja málið fyrir Alþingi.

 Hér er  um alvarlegt brot að ræða hjá umræddum tveimur ráðherrum.Þeir verða að axla ábyrgð á því broti.Engin gereyðingarvopn hafa fundist í Írak og fram hefur komið að gögnin,sem Powell utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði fyrir Öryggisráð Sþ., voru fölsuð.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

"Ákvörðun mun hafa verið tekin utan ríkisstjórnarinnar í tveggja manna tali forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Slík ákvörðun í þessu mikilvæga máli er kolólögleg.Það eru  skýr ákvæði um það,  að öll mikilvæg utanríkismál á að leggja fyrir utanríkismálanefnd. Og með því,að  hér var um algera stefnubreytingu  að ræða í  utanríkismálum átti að leggja málið fyrir Alþingi."

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn