Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Framsókn hefur hjálpað Sjálfstæðisflokknum að koma hér á íhaldsþjóðfélagi

laugardagur, 7. október 2006

 

 

Stefán Ólafsson prófessor fjallaði um skattamál og þróun velferðarkerfisins á Íslandi  í viðtali við NFS 2.september sl.  Stefán sagði, að meiri hægri stefna hefði verið rekin hér sl. 11 ár en hafi verið undir stjórn Thatchers og Reagan í Bretlandi og í Bandaríkjnunum. Báðir þessir erlendu hægri foringjar,Thatcher og Reagan, lækkuðu skatta á fyrirtækjum og hátekjumönnum eins og stjórnir Davíðs Oddssonar gerðu  en  þeir hækkuðu ekki skatta á  launafólki eins og hér hefur gerst. Þess vegna hefur  verið hér á landi meiri hægri stefna en í Bretlandi og Bandaríkjunum undir stjórn Thatchers og Reagan. Ójöfnuður hefur á þessu 11 ára tímabili aukist meira á Íslandi en í nokkru öðru vestrænu landi. Og velferðarkerfið íslenska hefur dregist aftur úr velferðarkerfi hinna Norðurlandanna og nálgast

 nú það sem gerist í Bandaríkjunum þar sem ástandið í velferðarmálum er verst.Kjör aldraðra og öryrkja hafa dregist aftur úr kjörum þessara hópa á hinum Norðurlöndunum.

 

Framsókn tekur upp stefnu íhaldsins

 

 Aukinn ójöfnuður og aukið misrétti í skattamálum er í samræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins.En Framsókn segist vilja aðra stefnu. Þess vegna er það undravert, að Framsókn skuli hafa hjálpað íhaldinu að koma hér á íhaldsþjóðfélagi, þar sem ójöfnuður er meiri en í nágrannalöndum okkar og misrétti í skattmálum mikið meira en þar.

En hafa lífskjör ekki batnað hér mikið síðustu 11 ár.? Hefur hagvöxtur ekki verið mikill? Jú. En ef við lítum til baka til síðustu áratuga þá eru lífskjörin ávallt betri á líðandi áratug en á áratugnum á undan.Það hefur verið stöðug framþróun á Íslandi og í Vestur-Evrópu,

.En  hagvöxtur hefur ekki verið meiri hér síðasta áratug en t.d. á áratugnum 1970-1980 en þá var hagvöxtur 5%.Það sem er hins vegar að á áratug núverandi stjórnarflokka er það, að gæðunum hefur verið misskipt. Allir landsmenn hafa ekki notið góðærisins.  Stórir hópar hafa verið skildir eftir, svo sem aldraðir,öryrkjar og láglaunafólk. Á uppgangstímum búa þessir hópar við mjög slæm lífskjör.Það er til skammar fyrir íslenskt samfélag.Fátækt hefur aukist mikið í góðærinu en  hópur fólks hefur á sama tíma getað rakað til sín peningum og margir hinna nýríku greiða aðeins 10% skatt, þ.e. aðeins fjármagnstekjuskatt á meðan allur almenningur og þar á meðal láglaunafólk verður að greiða 36% skatt.Þetta er gífurlegt misrétti. Jafnvel ríkisskattsjóra hefur ofboðið svo mjög þetta misrétti , að hann hefur gefið yfirlýsingu og gagnrýnt þetta.Þó er hann aðeins hlutlaus embættismaður.

 

Koma verður stjórninni frá

 

Það er orðin alger nauðsyn að koma ríkisstjórn ójafnaðar og misskiptingar frá völdum og koma í staðinn að  ríkisstjórn jafnaðar og velferðar.Það er búið að stórskemma velferðarkerfið og það tekur tíma  að lagfæra það. Kvótakerfið hefur einnig farið mjög illa með byggðir landsins. Víða úti á landi er sem sviðin jörð eftir afleiðingar kvótakerfsins.Það er mikið verk að vinna fyrir nýja ríkisstjórn einnig á sviði fiskveiðistjórnunar.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Morgiunblaðinu 4.oktober 2006



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn