Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Lélegur samningur um varnarmálin

miðvikudagur, 27. september 2006

 

 

 

Ríkisstjórnin skýrði frá samningaviðræðum við Bandaríkin um varnarmál 25.september. Helstu atriðin höfðu áður lekið út: Bandaríkin hreinsa ekki upp eftir sig,heldur skilja eftir mengun á Keflavíkurflugvelli,þar á meðal olíumengun og sorpmengun.Íslendingar taka við öllum fasteignum á Keflavíkurflugvelli og þurfa að rífa niður um helming þeirra með miklum tilkostnaði. Það heitir svo að Íslendingar fái mannvirkin frítt en verði á móti að hreinsa upp eftir varnarliðið. Það eru slæm skipti. Bandaríkjamenn ákváðu sjálfir að fara héðan og þeir gátu ekki farið með mannvirkin með sér. Þeir urðu að skilja þau eftir og höfðu enga stöðu til þess að biðja um greiðslu fyrir þau. Íslendingar  áttu því að gera kröfu til þess að Bandaríkjamenn hreinsuðu upp eftir sig. Það veit enginn hvað hreinsun á Keflavíkurflugvelli kostar. Það geta verið mjög háar upphæðir.

 

 Engar varnir í  landinu

 

 Aðalatriðið í nýafstöðnum samningaviðræðum eru þó varnir landsins. Þær verða engar. Herinn er farinn og eftir stendur aðeins í samkomulaginu við Bandaríkin, að þeir muni senda herlið hingað, ef á þarf að halda vegna einhverrar ógnar.Allir vita, að með nútíma tækni  geta erlendir hryðjuverkamenn verið komnir hingað  fyrirvaralaust og jafnvel erlendir herir. Bandaríkjamenn verða ekki komnir hingað  nægilega fljótt, ef slíkt ástand skapast. Það er lítið gagn í óljósu ákvæði um einhverja bandaríska varnaráætlun sem enginn veit um nema ef til vill 2 ráðherrar. Nær hefði verið að semja við NATO um stöðugt eftirlit hér á landi með herflugvélum og öðrum viðbúnaði. Skuldbinding Bandaríkjanna um að verja Ísland felur lítið meira í sér en skuldbinding NATO um að verja þau aðildarríki,sem á er ráðist.

 

Björgvin Guðmundsson

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn