Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Sagan endurtekur sig: Fyrst Þjóðhagsstofnun nú fjölmiðlafrumvarp

miðvikudagur, 28. apríl 2004

 

 

Mönnum er í fersku minni,þegar forsætisráðherra lagði niður Þjóðhagsstofnun.Sú stofnun hafði unnið sér fastan sess og var í miklu áliti. Framsókn var á móti því að leggja stofnunina niður. En forsætisráðherra sat fast við sinn keip. Og hann hafði sitt fram þrátt fyrir andstöðu Framsóknar. Mönnum til mikillar undrunar flutti utanríkisráðherra frumvarpið á alþingi  um  að leggja Þjóðhagsstofnun niður enda þótt hann hefði verið á móti því. Forsætisráðherra gerði  sér lítið fyrir og brá sé frá og Halldór fékk að vera forsætisráðherra í nokkra daga svona rétt til þess að leggja fram frumvarpið um niðurlagningu Þjóðhagsstofnunar!

 Nú virðist sagan vera að endurtaka sig.Forsætisráðherra hefur verið að tala um það af og til í allan vetur að setja þyrfti lög um eignarhald á fjölmiðlum. Hann talaði um það sl. nóvember og í þætti stöðvar 2,Kryddsíld, gagnrýndi hann Fréttablaðið  harðlega og kallaði Baugstíðindi. Utanríkisráðherra hefur ekkert minnst á þetta mál í allan vetur og virðist ekki hafa haft neina skoðun á því. Menn hafa haft það á tilfinningunni að þetta væri “prívatmál” forsætisráðherra.Enda  samdi forsætisráðherra sjálfur frumvarp um að banna Baugi að eiga Stöð 2.En forsætisráðherra var varla fyrr búinn að semja frumvarpið en hann  brá sér bæjarleið og lét utanríkisráðherra taka við.Í Kastljósi Sjónvarpsins 27. apríl  var utanríkisráðherra til andsvara fyrir fjölmiðlafrumvarpið og varði það í hástert eins og hann hefði alla tíð verið hlynntur því. Áhorfendur sáu þó vel,að ekki fylgdi full sannfæring máli hjá utanríkisráðherra þegar hann varði  afkvæmi forsætisráðherra. Þetta var skylduverk hjá honum. Þetta minnti óneitanlega mikið á skylduverkið að koma Þjóðhagstofnun fyrir kattarnef. Eru engin takmörk fyrir því hvað utanríkisráðherra tekur að sér að gera fyrir forsætisráðherra?Er það svona mikils virði að fá að sitja við borðsendann á ríkisstjórnarfundum?


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn