Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



INNRÁS Í ÍRAK ÁKVEÐIN LÖNGU FYRIR ÁRÁSINA Á TURNANA TVO

mánudagur, 12. janúar 2004

 
 Fundur gamalla" efnavopna "í Írak breytir engu.Ekkert gas í  vopnunum!
 
Fyrrverandi fjármálaráðherra í stjórn Bush, O´Neil,skýrði frá því í sjónvarpsviðtali fyrir skömmu, að Bush Bandaríkjaforseti hefði verið búinn að ákveða að gera innrás í Írak löngu áður en árásin á turnana tvo  í New York hefði verið gerð. Hann hefði farið að ræða um slíka innrás skömmu eftir að hann tók við völdum  og tekið ákvörðun um hana  löngu fyrir árásina á turnana tvo.Af þessu er ljóst,að  ástæður þær sem Bandaríkjamenn færðu fram fyrir innrásinni í Írak hafa verið málamyndaástæður einar.
 
 BANDARÍKJAÞING RANNSAKAR MÁLIÐ
 
Fram hefur komið í Bandaríkjunum, m.a. hjá Carnegie stofnuninni,að CIA,bandaríska leyniþjónustan,  hafi  gert meira úr  hernaðarmætti Írak en ástæður voru til svo auðveldara væri fyrir Bandaríkin að ákveða stríð á hendur Írak. Hafi leyniþjónustan gert mikið úr yfirráðum Írak yfir gereyðingarvopnum.Hið sama er að segja um aðila í varnarmálaráðuneytinu.Bandaríska þingið mun rannsaka þessar staðhæfingar CIA  til þess að fá úr því skorið hvort CIA fór vísvitandi með rangt mál í þessu efni.
 
ENGIN GEREYÐINGARVOPN?
 
Engin gereyðingarvopn hafa fundist í Írak og engin staðfesting fengist á því að Írak hafi haft möguleika á því að framleiða kjarnorkuvopn. Upplýsingar sem breska leyniþjónustan kvaðst hafa  í þessu efni hafa verið bornar til baka. Danskir og íslenskir sprengjusérfræðingar fundu fyrir nokkrum dögum "efnavopn" í jörðu sem sennilega innihalda gas. Mun hér vera um að ræða vopn,sem legið hafa í jörðu í 10 ár og notuð voru í stríði Írak gegn Íran. Bandaríkin létu Írak á þeim tíma í té efni sem gerðu þeim kleift að framleiða efnavopn en  Bandaríkin  veittu Írak aðstoð í stríði þeirra við Íran. Írak notaði engin efnavopn í stríðinu gegn Kuvait og Bandaríkin urðu ekki vör við nein efnavopn þá. Írak notaði heldur engin efnavopn, er Bandaríkin gerðu innrás í Írak. Ljóst er því,að  Írak hefur ekki átt nein ný efnavopn og ekki ætlað að beita þeim. Það stafaði engin ógn af Írak. Þeir höfðu engin gereyðingarvopn  og ekkert samband við Al Kaida hryðjuverkasamtökin. Allt tal Bandaríkjamanna um ógn frá Írak voru falsrök.
 
FUNDURINN HEFUR ENGA ÞÝÐINGU
 
Fundur gamalla "efnavopna"  frá stríðinu við Íran hefur enga þýðingu í þessu sambandi. Morgunblaðið birtir forsíðufyrirsögn með stríðsletri um þennan fund. Er það undarlegt fréttamat og t.d. allt annað en hjá Aftenposten í Noregi,sem er eins konar Morgunblað  Norðmanna. Í Aftenposten er þetta lítil frétt. Íslensk stjórnvöld geta ekki réttlætt stuðning sinn við innrásina  í  Írak með því að benda á fund gamalla "efnavopna",sem legið höfðu 10 ár i jörðu.Í ljós hefur nú komið,að  ekkert gas er í vopnum þessum.- Íslenska ríkisstjórnin studdi árásarstríð  gegn Írak,sem engin rök voru fyrir. Sameinuðu þjóðirnar samþykktu ekki þetta stríð,utanríkismálanefnd alþingis samþykkti það ekki. Alþingi Íslendinga samþykkti það ekki. Íslenska stjórnin braut lög með því að lýsa yfir stuðningi við innrás Bandaríkjanna í Írak  án samþykkis alþingis og utanríkismálanefndar.
 
Björgvin Guðmundsson
 
 


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn