Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Stjórnin ekki staðið við stóru orði n

föstudagur, 14. nóvember 2014

Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur nú verið við völd í nokkuð á annað ár.Stjórnarflokkarnir gáfu stór kosningaloforð í kosningabaráttunni vorið 2013.Framsókn lofaði að færa niður fasteignalán almennings um 2-300 milljarða og ná í því skyni peningum af þrotabúum föllnu bankanna.Stjórnarflokkarnir báðir lofuðu skattalækkunum, m.a. lækkun á sköttum atvinnulífsins svo sem á tryggingargjaldinu.Og báðir flokkarnir lofuðu að leiðrétta að fullu kjaragliðnun þá, sem aldraðir og öryrkjar urðu fyrir á krepputímanum.Og þeir lofuðu einnig að afturkalla að fullu kjaraskerðingu þá, sem lífeyrisþegar urðu fyrir 1.júlí 2009.Og þannig mætti áfram telja.Loforðin voru fleiri. Lítil lækkun fyrirtækjaskatta Hvernig hefur tekist til?. Hvernig hefur ríkisstjórninni tekist að standa við stóru orðin? Henni hefur tekist það illa.Stóra kosningaloforðið um hundruð milljarða lækkun fasteignalána skrapp saman og verður að tæpum 80 milljörðum kr. Þeir fjármunir verða ekki teknir af þrotabúum bankanna heldur af skattgreiðendum! Eða m.ö.o.Þeir verða færðir úr einum vasa í annan. Almennir skattar atvinnulífsins hafa lítið lækkað enn. Tryggingagjaldið var lækkað um 0,1% fyrir ári.Það var svo lítil lækkun,að hún fannst varla.En að vísu var veiðigjaldið lækkað.Í stað þess að lækka tryggingagjaldið myndarlega en það hefði komið öllum fyrirtækjum til góða var ráðist í verulega lækkun veiðigjalds, sem gagnaðist auðugum útgerðarfyrirtækjum.Einkennileg forgangsröðun það. Ekki staðið við loforðin við lífeyrisþega Ríkisstjórnin hefur ekki staðið við stóru kosningaloforðin, sem stjórnarflokkarnir gáfu öldruðum og öryrkjum.Loforðið um leiðréttingu á kjaragliðnun krepputímans hefur ekki verið efnt.Hækka þarf lífeyri aldraðra og öryrkja um a.m.k. 20% til þess að framkvæma umrædda leiðréttingu.Það mundi hækka lífeyri einhleypra ellilífeyrisþega, sem einungis hafa tekjur frá almannatryggingum, um tæpar 44 þús. kr. á mánuði fyrir skatt.Kostnaður við þessa leiðréttingu hjá öldruðum og öryrkjum er um 17 milljarðar kr. Stjórnarflokkarnir lofuðu að færa þessa fjármuni til lífeyrisþega, ef þeir næðu völdum. Því miður bendir allt til þess, að þeir ætli að svíkja þetta loforð.Varðandi afturköllun kjaraskerðingarinnar frá 1.júlí 2009 er það að segja, að einungis hluti hennar hefur verið afturkallaður, þ.e. frítekjumark vegna atvinnutekna aldraðra hefur verið leiðrétt svo og útreikningur á grunnlífeyri lífeyrisþega.Hætt hefur verið að reikna greiðslur úr lífeyrissjóði með tekjum við útreikning á grunnlífeyri.Þriðja skerðingin,aukin skerðing tekjutryggingar rann út af sjálfu sér um sl.áramót,þar eð lögin þar um giltu ekki lengur.Þrjár aðrar skerðingar frá 2009 eru óleiðréttar svo og leiðrétting vegna kjaragliðnunarinnar. Stjórnin tók við góðu búi Talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa undanfarið státað af því, að flestir hagvísar séu orðnir mjög hagstæðir og hafa þeir gefið til kynna, að þetta væri núverandi ríkisstjórn að þakka. Sannleikurinn er hins vegar sá, að fyrri ríkisstjórn, þ.e. stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, tókst mjög vel að skapa hagvöxt, draga úr verðbólgu og atvinnuleysi o.fl., þannig að núverandi stjórn tók við góðu búi.Þegar árið 2011 var orðinn myndarlegur hagvöxtur hér eða 2,7%.Var það það mun meiri hagvöxtur en í flestum öðrum löndum V-Evrópu nema í Noregi.Árið 2012 var hagvöxtur 1,5% og árið 2013 var hagvöxtur 3,3%. Verðbólgan var 18,6%, þegar ríkisstjórn Jóhönnu tók við en var komin í 3,4% þegar stjórnin fór frá.Ríkissjóðshallinn var yfir 200 milljarðar í ársbyrjun 2009 en var komin niður í einn milljarð 2013.Vöruskiptagöfnuðurinn var óhagstæður í ársbyrjun 2009 en varð snemma hagstæður á valdatímabiliu Jóhönnu. Þó gengisfall krónunnar í kjölfar bankahrunsins hafi komið illa við almenning hjálpaði gengisfallið útflutningsatvinnuvegunum og ferðaiðnaðinum.Góðar makrílveiðar hjálpuðu einnig upp á þjóðarbúskapinn. Ójöfnuður eykst Enn sem komið er hefur núverandi ríkisstjórn valdið mörgum vonbrigðum.Hún hefur ekki staðið undir væntingum. Því miður hefur stjórnin aukið nokkuð ójöfnuð í þjóðfélaginu á ný. Breytingar þær,sem ríkisstjórnin gerði á skattkerfinu juku ójöfnuð. Veiðigjöld útgerðarinnar voru lækkuð en gróði hefur verið í hæstu hæðum hjá útgerðinni sl. 2 ár.Auðlegðarskattur felldur niður. En skattar voru ekki lækkaðir á þeim lægst launuðu. Björgvin Guðmundsson Birt í Fréttablaðinu 13.nóv. 2014 -------------------------------------------------------------------------------- No virus found in this incoming message. Checked by AVG - www.avg.com Version: 9.0.932 / Virus Database: 3955.1.1/7613 - Release Date


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn