Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Alþingi hækki lífeyri aldraðra strax jafnmikið og lágmarkslaun

föstudagur, 28. ágúst 2015

Ég skora á alþingi að hækka strax lífeyri aldraðra og öryrkja jafnmikið og lágmarkslaun hækkuðu 1.mai sl eða um 31 þúsund krónur á mánuði. Hækkunin gildi frá 1.mai þannig að lífeyrisþegar fái 5 mánaða hækkun með septemberhækkun, þegar hækkunin taki gildi eða 155 þúsund krónur.Alþingi samþykki þessa hækkun strax og það kemur saman 8.september.Allir flokkar á alþingi taki höndum saman um þessa sjálfsögðu leiðréttingu á kjörum aldraðra og öryrkja.Náist þverpólitísk samstaða um þessa leiðréttingu á kjörum aldraðra og öryrkja er unnt að afgreiða frumvarp um hana á einum degi.Þjóðin öll mundi standa með alþingi í þessu máli og álit alþingis mundi stóraukast. Algert lágmark fyrir lífeyrisþega Einhleypir ellilífeyrisþegar, sem einungis hafa tekjur frá almannatryggingum,hafa í dag 225 þúsund krónur á mánuði frá TR fyrir skatt og 192 þúsund krónur á mánuði eftir skatt.Við leiðréttingu alþingis mundi þessi upphæð hækka í 256 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt og 211 þúsund eftir skatt.Það eru öll ósköpin. Skatturinn tekur sitt og ellilífeyrisþeginn heldur aðeins hluta af hækkuninni. Í rauninni erum við hér að tala um algert lágmark til þess að lifa af fyrir einstakling.Ef húsnæðiskostnaður er hár dugar þetta ekki.Það þarf til viðbótar að koma aðstoð frá sveitarfélagi.Lífeyrir TR til lífeyrisþega á að vera skattfrjáls.Alþingi þyrfti einnig að samþykkja, að næstu 3 árin fengju aldraðir og öryrkjar sömu hækkun og láglaunafólk, þ.e. hækkun upp í 300 þúsund krónur á mánuði eins og láglaunafólk á að fá. Eiga rétt á þessu samkvæmt stjórnarskránni Við erum hér að tala um einhleypa lífeyrisþega en síðan ættu aðrir aldraðir og öryrkjar að hækka tilsvarandi samkvæmt útreikningum Tryggingastofnunar ríkisins. Stjórnvöld, alþingi og ríkisstjórn, hafa skert kjör aldraðra og öryrkja á miðju ári. Á sama hátt getur alþingi hvenær sem er ársins hækkað lífeyri aldraðra og öryrkja.Það skiptir engu máli þó ekki sé lokið afgreiðslu nýrra fjárlaga.Stjórnarskráin er æðri fjárlögum og öllum öðrum lögum. Og samkvæmt 76.grein stjórnarskrárinnar á ríkið að aðstoða þá, sem þurfa aðstoð vegna elli og örorku.Sannanlega þurfa þeir aldraðir og öryrkjar, sem verst eru staddir aðstoð.Það er engin spurning, að þeir aldraðir og öryrkjar, sem einungis hafa tekjur frá TR, eiga rétt á aðstoð samkvæmt stjórnarskránni. Þeir hefðu hins vegar átt að fá hana miklu fyrr. Sama gildir um þá, sem eru með mjög lágan lífeyri úr lífeyrisssjóði. Best að miða við lágmarkslaun Ï tengslum við þetta mál ætti alþingi ef til vill einnig að samþykkja á ný eldri viðmiðun fyrir breytingar á lífeyri aldraðra og öryrkja, þ.e að miða ætti við breytingar á lágmarkslaunum verkafólks, þegar lífeyri væri breytt. Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra lét breyta þessari viðmiðun þannig, að nú á að miða við launaþróun í stað lágmarkslauna en lífeyrir þó aldrei að hækka minna en vísitala neysluverðs. Hann lýsti því yfir í tengslum við þessa breytingu, að hún yrði hagstæðari lífeyrisþegum en eldra ákvæði. Það hafa seinni tíma stjórnmálamenn ekki viljað viðurkenna.Þeir hafa verið að reikna út minni hækkun fyrir lífeyrisþega en láglaunamenn hafa fengið.Því er einfaldast að færa orðalagið til fyrra horfs svo ekki þurfi að deila um viðmiðunina. Alþingi sameinist im afgreiðsluna Það er ekki oft, sem alþingi sameinast um afgreiðslu mála.Oftast fær almenningur þá mynd af alþingi, að þar sé hver höndin uppi á móti annarri.En nú gefst alþingi tækifæri til þess að sameinast um mikið sanngirnis-og réttlætismál og skapa jákvæðari mynd af störfum þingsins. Björgvin Guðmunsdsson Formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Birt í Fréttablaðinu 28.ágúst 2015 Björgvin Guðmundsson


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn