Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Skuld ríkisins við lífeyrisþega stórhækkar

mánudagur, 8. júní 2015

Í stað þess,að stjórnarherrarnir uppfylli kosningaloforðin við aldraða og öryrkja og greiði að fullu háa skuld við þá eru þeir að bæta við skuldina! Háar fjárhæðir bætast við skuldina, þar eð stjórnvöld ætla að hafa af eldri borgurum og öryrkjum sömu hækkun og launafólk fær nú og einnig draga stjórnvöld það í 8 mánuði að lífeyrisþegar fái nokkrar kjarabætur.Stjórnarflokkarnir (ríkisstjórnin) lofuðu að afturkalla og leiðrétta alla kjaraskerðinguna, sem lífeyrisþegar urðu fyrir 2009 .Einnig lofuðu þeir að leiðrétta lífeyri aldraðra og öryrkja til samræmis við þær hækkanir, sem orðið hefðu á lægstu launum frá ársbyrjun 2009.(kjaragliðnunina) Hvorugt hafa þeir staðið við. Þessi miklu kosningaloforð við aldraða og öryrkja hafa áreiðanlega átt þátt í því, að stjórnarflokkarnir komust við valda 2013.Þeir eiga því að segja af sér, ef þeir standa ekki við loforðin.Tími þeirra er að renna út. 30 milljarða skuld hækkar í tæpa 40 milljarða! Þegar stjórnarflokkarnir höfðu náð völdum og myndað ríkisstjórn, var haldið sumarþing eftir kosningarnar 2013. Hvað efndu þeir þá af kosningaloforðunum við aldraða og öryrkja? Jú tvö af sex: Frítekjumark vegna atvinnutekna var hækkað úr 40 þús.krónum á mánuði í 110 þús kr. á mánuði.Það kostaði ríkið lítið, þar eð ríkið fær skatttekjur af þeim , sem fara út á vinnumarkaðinn.Hitt atriðið, sem var framkvæmt, var það, að grunnlífeyrir var endurreistur. Hann hafði verið afnuminn hjá þeim, sem höfðu góðar lífeyrissjóðstekjur.Það var mikilvægt að fá þessa leiðréttingu en hún gagnaðist þó aðeins þeim, sem voru vel settir.Annað var ekki gert á sumarþinginu 2013 á þessu sviði. Og fleira hefur ekki verð efnt af kosningaloforðunum fyrir frumkvæði ríkisstjórnarinnar. En í lok ársins féllu úr gildi lög um skerðingu tekjutryggingar. Þau voru tímabundin og áttu að gilda til ársloka 2013. Þá lækkaði skerðingarhlutfalli tekjutryggingar úr 45% í 39,35%. Alls kostuðu þessi þrjú atriði rúma 4 milljarða króna.Skuldin við lífeyrisþega lækkaði við framkvæmd þeirra í 30 milljarða.Hún hækkar nú aftur og fer í tæpa 40 milljarða, þar eð ríkisstjórnin vill ekki láta lífeyrisþega fá sömu hækkun og launþegar fá! Launþegar fá kauphækkun frá 1.mai sl. og lágmarkskaup hækkar þá úr 214 þúsund krónur á mánuði í 245 þúsund eða um 31 þúsund.Aldraðir og öryrkjar fá enga hækkun frá 1.mai og mega bíða í 8 mánuði! En þá fá þeir aðeins brot af því, sem launþegar fá.Það er því verið að níðast á lífeyrisþegum.Brot stjórnvalda gegnvart öldruðum og öryrkjum er tvíþætt: Þau láta lífeyrisþega fá mun minni hækkun en launþega og þau draga það í 8 mánuði að láta þá fá hækkun.Útreikningur á þessu hvoru tveggja er tæplega 10 milljarðar á ársgrundvelli.Það munar um minna. Lífeyrisþegar eiga að fá 300 þúsund á mánuði Ríkisstjórnin hefur ekkert sagt um það, hvort aldraðir og öryrkjar eigi að fá sömu hækkun á lífeyri sínum næstu 3 árin eins og launþegar fá á sínu kaupi.Kaup láglaunafólks hækkar um 28% á 3 árum og fer í 300 þúsund krònur á mánuði.Aldraðir og öryrkjar fá aðeins þriðjung af þeirri hækkun .En þeir eiga að fá sömu hækkun þ.e. 300 þúsund krónur á 3 árum.Komi stjórnvöld í veg fyrir það hækkar skuld ríkisins við lífeyrisþega enn. Birt í Fréttablaðinu 6.ágúst 2015 Björgvin Guðmundsson Formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni.


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn