Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ísland á að ljúka aðildarviðræðum við ESB

föstudagur, 10. maí 2013

Ríkisstjórnin hefur gert hlé á aðildarviðræðum Íslands við ESB.Þær verða ekki hafnar á ný nema það verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.Ekkert er athugavert við það að gera stutt hlé á aðildarviðræðum en öðru máli gegnir, ef það er meining ríkisstjórnarinnar að stöðva viðræðurnar í langan tíma.Þá væri mikið hreinlegra að leggja fram nýja þingsályktunartillögu á alþingi um að afturkalla umsóknina um aðild að ESB. Stjórnarflokkarnir eru ekki samstíga í þessu máli.Svo virðist sem utanríkisráðherra Framsóknar,Gunnar Bragi Sveinsson,vilji stöðva viðræðurnar fyrir fullt og allt án þess að láta alþingi afgreiða málið. Það gengur ekki.Sjálfstæðisflokkurinn vill standa við kosningaloforð um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald samningaviðræðna og hefur formaður flokksins,Bjarni Benediktsson, talað um, að æskilegt væri að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram á fyrri hluta kjörtímabilsins. Stefna ríkisstjórnarinnar: “Haltu mér,slepptu mér” Enda þótt stjórnarflokkarnir séu andvígir aðild að ESB er mjög óeðlilegt að þeir skuli stöðva viðræðurnar nánast á fölskum forsendum.Í samskiptum þjóða þarf Ísland að koma fram af kurteisi og heiðarleika.Miðað við það hvað aðildarviðræðurnar eru langt komnar, er eðlilegast að ljúka þeim og láta þjóðina síðan greiða atkvæði um aðildarsamning.Það væru eðlilegustu vinnubrögðin.Það er mjög erfitt að greiða atkvæði án þess að vita hvað er í boði.En ef ríkisstjórnin er staðráðin í að ljúka ekki viðræðunum, ætti hún að leggja fram tillögu á alþingi um að afturkalla aðildarumsóknina að ESB.Það er mikið eðlilegra en að stöðva viðræðurnar í langan tíma. Af einhverjum ástæðum vill ríkisstjórnin ekki gera það.Ríkisstjórnin er á móti aðild Íslands að ESB en vill samt ekki afturkalla umsóknina.Í þessu máli ríkir á stjórnarheimilinu einhvers konar “haltu mér,slepptu mér” stefna. Sjávarútvegsmál og landbúnaðarmál eftir Það er búið að afgreiða marga kafla í samningaviðræðum Íslands við ESB.Það á fyrst og fremst eftir að afgreiða tvo kafla, þ.e. sjávarútvegsmál og landbúnaðarmál. Ég hygg, að það hefði mátt afgreiða þá á hálfu ári og hafa síðan þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning.Þetta eru að vísu erfiðustu kaflarnir.Það veltur mest á niðurstöðunni í viðræðum um þessa kafla, hvort íslenska þjóðin samþykkir aðild að ESB eða hafnar henni.Eins og staðan er á Íslandi í dag er líklegast, að nýjum aðildarsamningi yrði hafnað.Það er aðeins í því tilviki, að mjög góðir samningar fáist um sjávarútvegs-og landbúnaðarmál, að búast má við því að þjóðin samþykki aðild að ESB. Telja má víst, að góður samningur fáist um landbúnaðarmál.Íslendingar munu í viðræðum um þau mál vísa í þær undanþágur eða sérlausnir,sem Finnar og Svíar fengu fyrir sinn landbúnað en tekið var tillit til þess,að landbúnaður í Finnlandi og Svíþjóð væri mjög norðlægur og skilyrði fyrir landbúnað ekki hin bestu þar. Hið sama gildir um landbúnað Íslands og því er fullvíst, að Ísland mun fá svipaðar undanþágur fyrir sinn landbúnað og ekki lakari.Samningaviðræður um íslenskan sjávarútveg verða erfiðari. Ísland mun byrja á því að reyna að fá það samþykkt,að Ísland verði sérstakt sjálfstjórnarsvæði í sjávarútvegsmálum.Góðar líkur eru á,að það fáist samþykkt.En þó það fáist ekki samþykkt ætti Ísland að halda öllum sínum veiðiheimildum við Ísland með tilvísun til þess hvernig öðrum fiskveiðiþjóðum í ESB hefur reitt af. Þær hafa haldið sínum veiðiheimildum. Allt veltur á sjávarútvegsmálunum Mjög margir Íslendingar munu taka afstöðu til inngöngu í ESB eftir því hvernig samningur um sjávarútvegsmál verður.Verði samningurinn góður og vel viðunandi fyrir Ísland munu þeir greiða atkvæði með aðild að ESB en verði samningurinn slæmur munu þeir greiða atkvæði gegn aðild að sambandinu.Það þýðir því ekkert að bera upp aðildarsamning að ESB, ef samningur um sjávarútvegsmál verður ekki hagstæður fyrir Ísland.Á því veltur allt málið. Björgvin Guðmundsson


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn