Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár

föstudagur, 11. nóvember 2016

Ný ríkisstjórn fær meðal annars það verkefni að bæta kjör aldraðra og öryrkja í samræmi við það,sem kjósendum var lofað í kosningunum.Ég reikna ekki með,að ný stjórn hafi það eins og frá farandi stjórn að lofa öldruðum og öryrkjum miklum kjarabótum og svíkja það síðan.Sjálfstæðisflokkurnn og Framsóknarflokkurinn gáfu öldruðum og öryrkjum stór kosningaloforð fyrir kosningarnar 2013 og þau voru svikin.Sjálfstæðisflokkurinn lofaði á landsfundi sínum 2013 að leiðrétta lífeyri vegna kjaragliðnunar krepputimans,2009-2013,sagði,að lífeyrir yrði leiðréttur strax til samræmis við hækkanir lægstu launa.Þetta var svikið.Framsóknarflokkurinn samþykkti á sínu flokksþingi að lífeyrir aldraðra og öryrkja yrði leiðréttur vegna kjaragliðnunar (kjaraskerðingar) krepputímans.Það var svikið. Formaður Sjálfstæðisflokksins,Bjarni Benediktsson,lofaði í bréfi til eldri borgara,að afnema tekjutengingu við lífeyri TR vegna tekna eldri borgara. Útreikningur grunnlífeyris,sem allir höfðu fengið fyrir 2009, var leiðréttur þannig, að þeir,sem höfðu háan lífeyri úr lífeyrissjóðum,fengju hann á ný, en að öðru leyti var þetta loforð svikð. Á síðasta degi þingsins fyrir kosningar afgreiddi fráfarandi ríkisstjórn örlitla hækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja ( hungurlús) og dró nokkuð úr skerðingum. Ekki er farið að greiða öldruðum og öryrkjum eina krónu af þessari hækkun. Þeir fá enga hækkun fyrr en 1.janúar 2017.Það er ekki hafður sami háttur á eins og gagnvart ráðherrum og þingmönnum við afgreiðslu launahækkana.Kjararáð afgreiddi kauphækkun til ráðherra og þingmanna,35% til ráðherra og 45% til þingmanna.Þurftu ráðherrar og þingmenn ekki að bíða eftir launahækkuninni til 1.janúar 2017 eins og lífeyrisþegar? Er ekki jafnræði samkvæmt stjórnarskránni.Eiga ekki allir að sitja við sama borð? Nei ekki aldeilis.Þingmenn fengu sína hækkun strax,meira að segja áður en þeir mæta í vinnunni og ráðherrar fengu sina hækkun líka strax.Það þurfti ekki að bíða eftir afgreiðslu fjárlaga.Þetta er gróf mismunun.Það eru nógir peningar til þegar hækka þarf laun ráðherra,þingmanna og æðstu embættismanna.Lífeyrir aldraðra,sem eru i hjónabandi eða sambúð á að hækka um 10 þúsund kr á mánuði eftir skatt á næsta ári,fara í 195 þúsund á mánuði og hjá einhleypum á að hækka í 227 þúsund kr á mánuði eftir skatt eða um 20 þúsund kr.Þetta er alger hungurlús og munar litlu sem engu.Vissir þingmenn geta hins vegar hækkað í 2 milljónir á mánuð og ráðherrar fá einnig svimandi hækkanir.Það er ljóst,að það búa tvær þjóðir í þessu landi.Þingfararkaup hækkar um 338 þús kr á mánuði en síðan er greitt sérstaklega fyrir formennsku i nefndum,fyrir þingflokksformennsku og formennsku i flokkum og styrkur fyrir utanbæjarþingmenn sem þurfa að sækja þing til Reykjavíkur.Fleiri sporslur finnast. Ráðherrar hækka um 488 þúsund kr en lífeyrisegar hækka sem fyrr segir á næsta ári um 10 þúsund á mánuði og upp í 27 þúsund krá mánuði. Það verður að endurskoða þá hungurlús sem fráfarandi ríkisstjórn er að skammt lífeyrisþegum og ákveða miklu meiri hækkun til lífeyrisþega, ef þeir eiga að komast sæmilega af. Þeir þurfa að fá a.m.k. 400 þúsund kr á mánuði fyrir skatt eins og ég hef skrifað um áður. Það þýðir 320 þúsund eftir skatt.Það er lágmark og í samræmi við neyslukönnun hagstofunnar. Hér er átt við þá aldraða og öryrkja,sem enungis hafa lífeyri frá almannatryggingum. Björgvin Guðmundsson


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn