Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Hvað þurfa eldri borgarar mikið til framfærslu?

laugardagur, 12. september 2015

Engin könnun hefur verið gerð á því hvað eldri borgarar þurfi mikið sér til framfærslu, þegar þeir eru hættir störfum.Raunar hefur Hagstofan ekki kannað framfærslukostnað almennt. En hún hefur reglulega kannað neyslukostnað, gert neyslukannanir.Samkvæmt síðustu neyslukönnun Hagstofunnar er meðaltalsneysla einhleypinga 321 þúsund krónur á mánuði.Húsnæði er inni i þeirri tölu og nær allir neysluliðir.Þegar velferðarráðuneytið kannaði árið 2011 hvert ætti að vera dæmigert neysluviðmið var útkoman svipuð og í neyslukönnun Hagstofunnar. Ljóst er þvi að miða má við hana. Neyslukönnun Hagstofu er viðmiðið Ég tel,að neyslukönnun Hagstofunnar eigi við eldri borgara eins og aðra. Sumir liðir könnunarinnar,eins og lækniskostnaður og lyfjakostnaður eru þó lægri en meðaltals -raunkostnaður þessara kostnaðarliða hjá eldri borgurum.Eldri borgarar eyða m.ö.o. hærri upphæðum í læknis-og lyfjakostnað en nemur meðaltali slíks kostnaðar hjá almenningi. .Lífeyrir aldraðra hjá Tryggingastofnun er aðeins 192 þúsund krónur á mánuði eftir skatta (einhleypingar, sem ekki hafa aðrar tekjur en frá TR) Það vantar því 129 þúsund krónur á mánuði upp á, að lífeyrir TR nái meðaltali neyslukönnunar Hagstofunnar.Tölurnar eru sambærilegar, þar eð í báðum tilvikum eru þær án skatta. FEB vill miða við neyslukönnunina Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hefur ítrekað ályktað á aðalfundum sínum að hækka ætti lífeyrinn frá almannatryggingum um 129 þúsund krónur á ári svo hann næði upphæð neyslukönnunar Hagstofunnar.En stjórnvöld hafa hundsað þá ályktun eins og þau hafa hundsað aðrar ályktanir eldri borgara! Félag eldri borgara hefur boðið, að þessi munur,129 þúsund krónur, yrði jafnaður i 3 áföngum.En rïkisstjórnin hefur virt þá ósk að vettugi.Það eina sem stjórnin býður eru rúmar 20 þúsund krónur af þessum 129 þúsundum! Rausnarlegt það,þegar nógir peningar eru til.Stjórnin hefur meira að segja afsalað sér sköttum! Jafna má mikið á 3 árum . Ef lífeyrir eldri borgara hjá TR hækkar um 14,5% eins og lágmarkslaun hækkuðu hækkar lífeyririnn um 32625 krònur á mánuði .Lífeyrir aldraðra, sem einungis hafa tekjur hjá TR, er í dag 225 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt. 14,5% hækkun gerir 32.625 kr. Ef lífeyrir aldraðra hjá TR hækkar alls upp í 300 þúsund á mánuði á 3 árum eins og lágmarkslaun hefur lífeyrir aldraðra hjá TR hækkað verulega.Ríkisstjórnin ætti að taka rögg á sig og stíga þessi skref. Björgvin Guðmundsson Formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Birt í Fréttablaðinu 9.des. 2015


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn