Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Pantað lögfræðiálit um Írak

þriðjudagur, 25. janúar 2005

 

 

Allt frá því,að forsætisráðherra skýrði frá í kastljósi Sjónvarpsins 6.desember sl.að aðild Íslands að innrásinni í Írak hefði ekki verið rædd í ríkisstjórn hafa fjölmiðlar sótt hart að ráðherranum og óskað skýringa.Ráðherrann tók það ráð að loka sig af og láta fjölmiðla ekki ná í sig. Hann treysti sér ekki til þess að réttlæta og skýra það,að ríkisstjórn og utanríkismálanefnd hefði verið sniðgengin í þessu mikilvæga máli.

En á mánudag fékk ráðherrann skyndilega málið á ný. Þá var hann kominn með lögfræðiálit upp á vasann frá Eiríki Tómassyni flokksbróður sínum.Eiríkur sagði í þessu pantaða áliti,að þeir Davíð og Halldór hefðu verið á fullum rétti að taka ákvörðun um það einir að  láta Ísland lýsa yfir stuðningi við árás á annað ríki! Menn urðu mjög hissa á þessu áliti Eiríks. Ólafur Hannibalsson sagði í Silfri Egils,að Eiríkur Tómasson væri vonbiðill um embætti Hæstaréttardómara og menn yrðu að skoða þetta álit hans í því ljósi.

  Það þarf engan lögspeking til þess að sjá það,að árás  á annað  ríki,stuðningur við innrás í annað ríki er meiri háttar utanríkismál,sem bera þarf undir utanríkismálanefnd. Og það sér hver leikmaður,að árás á annað ríki er mikilvægt mál.Aðild Ísland að slíku máli er mikilvægt stjórnarmálefni.Samkvæmt stjórnarskrá Íslands ber að leggja slíkt mál fyrir ráðherrafund,fyrir fund ríkisstjórnar. Það var ekki gert og málið var heldur ekki lagt fyrir utanríkismálanefnd eins og lög kveða á um. Það er alveg sama hvað forsætisráðherra fær marga lögfræðinga til þess að toga það  og teygja hvað telst meiri háttar utanríkismál. Sérhver venjulegur ríkisborgari Íslands veit það,að ef Ísland ætlar að  brjóta  hefðbundna utanríkisstefnu Íslands og lýsa yfir stuðningi við árás á annað  ríki í berhögg við öryggisráð Sþ þá er það meiriháttar utanríkismál og mikilvægt stjórnarmálefni sem bera skal undir utanríkismálanefnd og ríkisstjórn.Það skiptir engu máli í þessu sambandi þó ríkisstjórnin sé fjölskipað stjórnvald og utanríkisráðherra geti tekið ákvarðanir einn um minni háttar utanríkismál.Hann getur ekki einn og ekki í samráði við forsætisráðherra tekið ákvörðun um árás á annað ríki.

Össur Skarphéðinsson formaður Samfylkingarinnar hefur nú einnig bent á það,að sú ákvörðun utanríkisráðherra  ( og forsætisráðherra) þegar í febrúar að ljá Bandaríkjunum og Bretlandi afnot af Keflavíkurflugvell fyrir árásarflugvélar á Írak hafi verið brot á stjórnarskránni.Slíkt hafi ekki verið heimilt án samþykkis alþingis.

Það er því alveg sama hvar  borið er niður: Einhliða ákvarðanir forsætisráðherra og utanríkisráðherra um stuðning  Íslands við innrás í Írak og um að setja Ísland á lista hinna staðföstu þjóða standast hvorki lög né  stjórnarskrá.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn