Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Samfylkingin mun ná sér á strik

sunnudagur, 4. desember 2005

 

 

Fjölmiðlar hafa tekið andköf vegna útkomu Samfylkingarinnar í Gallup könnun sem birt var 1.desember sl. Samkvæmt þeirri könnun tapaði Samfylkingin 2% stigum frá könnun Gallups einum mánuði fyrr. Þessi breyting á fylgi Samfylkingarinnar milli mánaða er þó ekki meiri en oft á sér stað á fylgi annarra stjórnmálaflokka milli mánaða.Fylgi allra stjórnmálaflokkanna hefur sveiflast nokkuð á yfirstandandi ári.

Vinstri grænir voru t.d. með 19% fyrir réttu ári.En í apríl-júní voru þeir með 15%. Í September fóru þeir aftur upp í 19 % en féllu niður í 14% mánuði síðar. Nú hafa þeir aftur náð sér upp.En þetta eru talsverðar sveiflur og hafa ekki vakið mikið umtal  hjá fjölmiðlum.Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur einnig sveiflast mikið. Fyrir 12 mánuðum  var flokkurinn með 35% en í kringum landsfundinn hækkaði flokkurinn og komst í 44% í oktober. Strax mánuði síðar var fylgið komið í 41%.Menn höfðu spáð því,að þegar Davíð hætti mundi fylgið hrynja af Sjálfstæðisflokknum. En það hefur ekki orðið. Þvert á móti jókst fylgið í kringum landsfundinn og við valdatöku Geirs Haarde. Svo virðist sem fylgi Sjálfstæðisflokksins sé nokkuð traust án tillits til foringja.Og mikið umtal eins og virðist vera hringum landsfund og prófkjör hefur meira að segja en hver er foringi.Samfylkingin  var með 30% fyrir 12 mánuðum en komst upp í 34% ( í júní) í kringum landsfund flokksins,þegar Ingibjörg Sólrún var kosin formaður.Í oktober var fylgið komið í 29% og nú mældist það  tæp 26%. Ég spái því,að Samfylkingin muni fljótlega ná  sér á strik og komast í 30% og rúmlega það. Sjálfstæðisflokkurinn mun einnig fljótlega hjaðna á ný þegar nýja brumið er farið af eftir formannsskiptin.

 Athyglisvert era ð VG hefur treyst sig í sessi sem róttækur  flokkur. Svo virðist sem róttæk stefna þeirra hafi hljómgrunn. Gæti það verið Samfylkingunni vísbending um það,að  færa stefnuna ekki um of inn að miðjunni.

 Ingibjörg Sólrún hefur staðið sig vel sem formaður Samfylkingarinnar. Það er því ekki unnt að kenna henni um tímabundna niðursveiflu  Samfylkingarinnar eins og miklir hægri pennar vilja gera.Ef Samfylkingin heldur sömu stefnu og áður og daðrar ekki við Sjálfstæðisflokkinn fær hún fljótlega sitt fyrra fylgi og rúmlega það.

 

Björgvin Guðmundsson

Birt í Fréttablaðinu 7.des. 2005


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn