Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ákvörðun um stuðning Íslands við innrás í Írak var ólögmæt

þriðjudagur, 22. mars 2005

 

Innrásin í Írak var ólögmæt. Hún var brot á alþjóðalögum.Ákvörðunin um stuðning Íslands við innrásina var einnig ólögmæt.Þetta er álit

Ragnars Aðalsteinssonar hæstaréttarlögmanns.Hann kom á fund utanríkismálanefndar alþingis og sagði álit sitt á því hvort ákvörðun íslenskra stjórnarvalda um stuðning við innrás í Írak hefði verið lögmæt. Sagði Ragnar,að ákvörðun íslenskra stjórnvalda í þessu máli hefði verið ólögmæt af eftirfarandi ástæðum:Innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak naut ekki stuðnings Öryggisráðs Sþ. og var því brot á alþjóðalögum. Aðild Íslands að ólögmætri árás á annað  ríki átti því að ræða á alþingi og samþykkjast þar.Það var ekki gert. Stuðningur Íslands við innrásina í Írak var heldur ekki  ræddur í utanríkismálanefnd eins og skylt er samkvæmt lögum,þar eð um mikilvægt utanríkismál var að ræða.

 Ragnar Aðalsteinsson vék að áliti Eiríks Tómassonar prófessors og sagði,að hans álit hefði byggst á því,að um minni háttar utanríkismál hefði verið að ræða. En Ragnar kvaðst ósammála því,að svo hefði verið. Stuðningur Íslands við ólögmæta árás á Írak hefði verið eitt stærsta utanríkismál Íslands frá stofnun lýðveldisins. Þess vegna hefði það mál átt að fara fyrir alþingi og utanríkismálanefnd.Tveir ráðherrar gátu ekki tekið ákvörðun í svo stóru máli.

 

Vegna þrýstings frá Bandaríkjunum!

 

  Forsætisráðherra var í viðtali við Stöð 2 hinn 9.febrúar sl. og ræddi innrásina í Írak. Þar sagði ráðherra,að vegna þrýstings frá Bandaríkjunum hefði Ísland samþykkt að vera á lista hinna staðföstu ríkja og  lýsa yfir stuðningi við innrásina í Írak.Er þetta í fyrsta sinn,sem það kemur fram,að  Ísland hafi látið undan þrýstingi Bandaríkjanna í þessu efni. Einnig kom það fram í viðtalinu,að óbein tengsl hefðu verið í máli þessu milli  varnarhagsmuna Íslands ( varnarliðsins) og ákvörðunar um stuðning við innrás í Írak.Þetta er einnig í fyrsta sinn,sem  það kemur opinberlega fram,að tengsl hafi verið þarna á milli. Áður hefur því alltaf verið  neitað. Þá kom það einnig fram í viðtalinu við ráðherrann,að ríkisstjórnarfundur hafi staðið yfir þegar sendiherra Bandaríkjanna kom í forsætisráðuneytið  til viðræðna um stuðning Íslands við innrásins. Hefði forsætisráðherra ( þá utanríkisráðhera) farið fram af fundinum til þess að fá fregnir af komu bandaríska sendiherrans og viðtali embættismanna við hann.En ekki skýrði utanríkisráðherra ríkisstjórnarfundinum frá málinu þó fundur stæði yfir. Málinu var haldið leyndu fyrir ríkisstjórninni. Þá kom það fram í sjónvarpsviðtalinu,að Bandaríkin hafi í fyrstu viljað halda því leyndu hvaða ríki væru á lista hinna staðföstu ríkja og þess vegna hefði íslensku  þjóðinni ekki verið skýrt strax frá málinu. M.ö.o.: Málinu var haldið leyndu fyrir íslensku þjóðinni vegna kröfu Bandaríkjanna.

 

Alger niðurlæging Íslands

 

Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður sagði á alþingi um mál þetta,að niðurlæging þjóðarinnar hefði verið alger í máli þessu. Ísland hefði farið á lista yfir þær þjóðir sem studdu innrásina en Bandaríkin hefðu ráðið því hvenær listinn yrði gerður opinber. Þau gátu notað nafn Íslands í þessu efni að vild.

Í mars 2003 skrifaði ég grein í Morgunblaðið um Íraksstríðið og sagði þá m.a. eftifarandi: “ Það er (því) full ástæða til þess að Alþingi skipi rannsóknarnefnd til þess að rannsaka hvernig ákvörðun um stuðning Íslands við innrásina í Írak var tekin.Hvaða upplýsingar hafði utanríkisráðherra um gereyðingarvopn Íraka? Var ákvörðun Íslands tekin á löglegan hátt?”. Þessi orð eru enn í fullu gildi. Það er jafnmikil þörf á því nú eins og á árinu 2003,þegar ég setti fram tillögu um rannsóknarnefnd alþingis,að fram fari rannsókn á þessu máli.

 Rannsóknarnefndir  vegna innrásar í Írak  hafa verið stofnsettar í mörgum löndum,þar á meðal í Bandaríkjunum og í Bretlandi. Starfsemi slíkra nefnda  í þessum löndum  hefur vakið mikla athygli og leitt margt athyglisvert í ljós.Ef stjórnarherrarnir hér hafa ekkert að fela eiga þeir að samþykkja að alþingi komi á fót rannsóknarnefnd í máli þessu. Ef þeir fallast ekki á það, hafa þeir óhreint mjöl í pokahorninu.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Morgunblaðinu  22.mars  2005

 

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn